Måndag 7 September | 18:35:44 Europe / Stockholm

Ásar hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

2026-08-31 11:05:18

Í 35. viku 2026 keypti Ásar hf. 2.500.000 eigin hluti að kaupverði 30.900.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
24.8.202610:14500.00012,506.250.000115.664.486
25.8.202612:07500.00012,406.200.000116.164.486
26.8.202610:19500.00012,406.200.000116.664.486
27.8.202610:04500.00012,256.125.000117.164.486
28.8.202613:48500.00012,256.125.000117.664.486
  2.500.000 30.900.000117.664.486


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Ása sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. ágúst 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Ásar átti 115.164.486 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 117.664.486 eða sem nemur 4,90% af útgefnum hlutum í félaginu.

Ásar hefur keypt samtals 2.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,10% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 30.900.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.