Måndag 7 September | 18:35:45 Europe / Stockholm

Ásar hf. - Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun

2026-09-07 10:07:00

Í 36. viku 2026 keypti Ásar hf. 2.000.000 eigin hluti að kaupverði 24.225.000 kr. skv. sundurliðun hér á eftir:

DagsetningTímiKeyptir hlutirViðskiptaverðKaupverð (kr.)Eigin hlutir eftir viðskipti
31.8.202613:21500.00012,206.100.000118.164.486
1.9.202613:53500.00012,156.075.000118.664.486
2.9.202610:47500.00012,106.050.000119.164.486
4.9.202611:19500.00012,006.000.000101.618.958
  2.000.000 24.225.000101.618.958


Viðskiptin eru samkvæmt endurkaupaáætlun Ása hf. sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. ágúst 2026. Endurkaup núna samkvæmt áætluninni munu að hámarki nema 500 milljónum króna. Endurkaupaáætlunin er í gildi í 18 mánuði frá síðasta aðalfundi, en þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagsins árið 2027, eða skemur ef skilyrði um hámarkskaup eru uppfyllt fyrir þann tíma.

Ásar hf. átti 117.664.486 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 101.618.958 eða sem nemur 4,23% af útgefnum hlutum í félaginu. Föstudaginn 4. september 2026 afhenti Ásar hf. 18.045.528  hluti í tengslum við kaupréttaráætlun starfsmanna sem samþykkt var á aðalfundi félagsins þann 10. mars 2022.

Ásar hf. hefur keypt samtals 4.500.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,19% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 55.125.000 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052/EB sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.