Måndag 2 November | 13:30:19 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-03-11 N/A Årsstämma
2027-02-16 N/A Bokslutskommuniké 2026
2026-10-27 - Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-08-18 - Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-04-28 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.21 ISK
2026-03-12 - Årsstämma
2026-02-16 - Bokslutskommuniké 2025
2025-10-28 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-08-19 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-14 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.20 ISK
2025-03-13 - Årsstämma
2025-02-18 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-22 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-27 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-15 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.20 ISK
2024-03-14 - Årsstämma
2024-02-20 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-31 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-22 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-04-25 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-02-14 - Bokslutskommuniké 2022
2022-10-25 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-04-26 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-10 - Årsstämma
2022-02-15 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-26 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-31 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-27 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-12 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2021-03-11 - Årsstämma
2021-02-18 - Bokslutskommuniké 2020
2020-10-27 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-25 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-04-28 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-13 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2020-03-12 - Årsstämma
2020-02-25 - Bokslutskommuniké 2019
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-27 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-30 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-26 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-11 - X-dag ordinarie utdelning ASAR 0.06 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorTelekom & Media
IndustriTelekommunikation och -tjänster
Ásar är ett telekombolag. Bolaget levererar mobila tjänster, abonnemang, fast- och mobilt bredband, IP-lösningar, samt tillhörande tjänster. Utöver huvudverksamheten erbjuds även olika smartlösningar, inkluderat betalningslösningar samt digitala lösningar för bilkörande. En stor del av bolagets tjänster nås digitalt och kunderna återfinns både bland privat – och företagskunder, med störst verksamhet på den isländska marknaden. Bolaget gick tidigare under namnet Síminn.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Ásar hf. – Samkeppniseftirlitið heimilar kaup á Öryggismiðstöð Íslands og Opnum kerfum

2026-10-30 15:20:57

Vísað er til fyrri tilkynninga Ása hf. um kaup félagsins á öllu hlutafé í Öryggismiðstöð Íslands hf. (ÖMÍ) og Opnum kerfum hf. (OK), síðast frá 4. október sl. um sáttaviðræður við Samkeppniseftirlitið.

Ásar hafa nú fengið samþykki Samkeppniseftirlitsins fyrir kaupunum á ÖMÍ og OK. Kaupin eru mikilvægur liður í vaxtarstefnu Ása og styrkja áframhaldandi uppbyggingu samstæðunnar. Að viðskiptunum loknum er áætlað að tekjur samstæðunnar verði allt að 50 milljarðar króna og EBITDA hátt í 10 milljarðar króna á ársgrundvelli þegar samlegðaráhrif eru að fullu komin fram.

Samþykki Samkeppniseftirlitsins er veitt á grundvelli sáttar sem Ásar og Samkeppniseftirlitið hafa undirritað og felur í sér skilyrði. Markmið þess er að efla og vernda virka samkeppni á  mörkuðum  og bregðast við mögulegri röskun á samkeppni.

Í skilyrðinu felst að óheimilt verður að gera sérstök kjör til heimila á vaktaðri öryggisþjónustu háð því að viðkomandi heimili sé jafnframt í viðskiptum við félögin um talsímaþjónustu eða internetþjónustu um fastlínu. Félögunum verður þó ávallt heimilt að mæta samkeppni frá samkeppnisaðilum sem bjóða slík kjör.

Skilyrðið fellur niður að fimm árum liðnum en getur fallið niður fyrr ef hlutfall internettenginga Símans ehf. fer niður fyrir skilgreind viðmið.

Enn fremur lýsa Ásar því yfir að ekki séu til staðar áform um að breyta því fyrirkomulagi að félögin séu rekin sem dótturfélög, í samræmi við yfirlýsta stefnu samstæðunnar, án þess að skilyrði þess efnis sé sett. Þá er því lýst yfir að markmið kaupanna sé ekki að bjóða umfangsmiklar heildarlausnir þannig að útilokandi áhrif myndist á fyrirtækjamarkaði, og að félögin hafi við undirritun sáttarinnar engin áform um að bjóða blandaða vöndlun með vaktaðri öryggisþjónustu innifalinni sem sé til þess fallin að hafa útilokunaráhrif í för með sér á fyrirtækjamarkaði.   

Gert er ráð fyrir að framkvæmd viðskiptanna eigi sér stað á næstu vikum í samræmi við kaupsamninga aðila. Samanlagt heildarvirði (e. enterprise value) OK og ÖMÍ í viðskiptunum nemur 13.750 milljónum króna að viðbættum leiguskuldbindingum sem eru áætlaðar um 1.000 milljónir króna. Endanlegt kaupverð til greiðslu ræðst þó meðal annars af stöðu nettó vaxtaberandi skulda og veltufjármuna á viðmiðunardegi uppgjörs. Kaupin verða fjármögnuð með hlutafé í Ásum, lánsfé og handbæru fé. Miðað er við að um 6.025 milljónir króna verði greiddar með afhendingu á u.þ.b. 390 milljónum hluta. Endanlegur fjöldi hluta mun þó ráðast af kaupverði eftir leiðréttingu vegna veltufjármuna og skulda.

Ásar hf. munu upplýsa um það þegar viðskiptin hafa verið frágengin.

Þessi tilkynning er birt af Ásum hf. og inniheldur upplýsingar sem töldust innherjaupplýsingar í skilningi 7. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og Ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR), sbr. lög nr. 60/2021, um aðgerðir gegn markaðssvikum, varðandi sáttarviðræður við Samkeppniseftirlitið sem lýst er að ofan. Tilkynning þessi er gerð af Maríu Björk Einarsdóttur, forstjóra Ása hf., í samræmi við upplýsingaskyldu félagsins samkvæmt MAR og 2. gr. framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (EU) 2016/1055.