Ásar hf. – Sáttaviðræður við Samkeppniseftirlitið
Vísað er til tilkynningar Ása hf. frá 15. september 2026 um andmælaskjal Samkeppniseftirlitsins vegna kaupa félagsins á annars vegar Öryggismiðstöð Íslands hf. (ÖMÍ) og hins vegar Opnum kerfum hf. (OK).
Ásar skiluðu athugasemdum við andmælaskjalið 25. september sl. en þar var jafnframt óskað eftir sáttaviðræðum við Samkeppniseftirlitið.
Samkeppniseftirlitið hefur nú tilkynnt félaginu að forsendur séu til að hefja viðræður um mögulega sátt vegna kaupanna.
Vegna þessa hefur frestur Samkeppniseftirlitsins til að ljúka rannsókn á kaupunum á ÖMÍ framlengst sjálfkrafa um fimmtán virka daga, og er nú til 30. október 2026 í stað 9. október áður, sbr. 17. gr. d samkeppnislaga nr. 44/2005.
Frestur til að ljúka rannsókn vegna kaupanna á OK er eftir sem áður 4. nóvember nk.
Félagið mun greina frá framvindu málsins eftir því sem tilefni er til, lögum samkvæmt.