Bera hf.: Afkomutilkynning fyrir 1. mars 2026 til 31. ágúst 2026
Stjórn og forstjóri samþykktu árshlutareikning samstæðu Beru hf. fyrir tímabilið 1. mars 2026 – 31. ágúst 2026 á stjórnarfundi 8. október 2026.
Helstu niðurstöður annars ársfjórðungs fjárhagsársins 2026 (Q2) eru:
- Vörusala samstæðunnar jókst um 21,0% miðað við sama tímabil í fyrra.
- EBITDA ársfjórðungsins var 2.452 millj. kr. samanborið við 1.611 millj. kr. árið áður.
- Hagnaður eftir skatta var 1.419 millj. kr. samanborið við 875 millj. kr. árið áður.
- EBITDA spá félagsins fyrir fjárhagsárið hækkar í 6.300–6.600 millj. kr.
Helstu niðurstöður fyrstu 6 mánaða fjárhagsársins 2026 eru:
- Vörusala samstæðunnar jókst um 18,1% miðað við sama tímabil í fyrra.
- EBITDA fyrstu 6 mánuðina var 3.677 millj. kr. samanborið við 2.581 millj. kr. árið áður.
- Hagnaður eftir skatta var 1.817 millj. kr. samanborið við 1.254 millj. kr. árið áður.
- Hlutfall nettó vaxtaberandi skulda og EBITDA var 1,9 í lok tímabilsins, samanborið við 2,6 í upphafi fjárhagsársins.
Rekstur Q2 2026 (millj. kr.)
| Rekstrarreikningur Q2 2026 | Q2 2026 | Q2 2025 | Breyt. | % Breyt |
| Vörusala | 15.729 | 13.000 | 2.729 | 21% |
| Áfengis- og skilagjald | 3.838 | 3.534 | 304 | 9% |
| Vörunotkun | 5.574 | 4.788 | 786 | 16% |
| Annar framleiðslukostnaður | 332 | 250 | 82 | 33% |
| Framlegð | 5.985 | 4.428 | 1.557 | 35% |
| Aðrar tekjur | 13 | 11 | 2 | 17% |
| Laun og launatengd gjöld | 2.043 | 1.370 | 672 | 49% |
| Sölu- og markaðskostnaður | 805 | 785 | 20 | 3% |
| Annar kostnaður | 699 | 673 | 26 | 4% |
| EBITDA | 2.452 | 1.611 | 841 | 52% |
| Afskriftir | 390 | 303 | 87 | 29% |
| EBIT | 2.063 | 1.308 | 754 | 58% |
| Fjármagnsliðir og áhrif hlutdeildarfélaga | 297 | 218 | 79 | 36% |
| Hagnaður fyrir skatta | 1.765 | 1.090 | 675 | 62% |
| Tekjuskattur | 349 | 215 | 134 | 62% |
| Aflögð starfsemi | 3 | 3 | ||
| Hagnaður e skatta | 1.419 | 875 | 543 | 62% |
Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf.
Góður vöxtur var í flestum vöruflokkum hjá Ölgerðinni á ársfjórðungnum. Vinsældir Gull Lite og Bola X héldu áfram að aukast og sama má segja um Collab. Nýi próteindrykkurinn UPP fór mjög vel af stað og greinilegt að eiginleikar hans mæta þörf sem var á markaðnum. Átöppunartekjur vegna vatnsframleiðslunnar fyrir Iceland Spring hækkuðu einnig samhliða betri sölu á vatni erlendis. Kostnaðarlega gekk vel og EBITDA ársfjórðungsins var 1.712 millj. kr. samanborið við 1.317 millj. kr. á sama tímabili í fyrra.
Danól ehf.
Sérvöruhluti Danól gekk vel á ársfjórðungnum, en meðal vara eru nýjungar eins og Bloom vörurnar sem hefur verið vel tekið á markaðnum. Matvöruhlutinn er í minnkun sem skýrist að mestu vegna minni sölu til stórmarkaða. Í stóreldhús hlutanum hafa orðið töluverðar breytingar sem felast í nýju fyrirkomulagi dreifingar og hærra þjónustustigi til viðskiptavina. Vonir eru bundnar við að breytt fyrirkomulag styrki þann hluta starfseminnar til framtíðar. Breytingunum fylgdi ákveðinn kostnaður sem dregur afkomu ársfjórðungsins niður. EBITDA ársfjórðungsins var 114 millj. kr. samanborið við 162 millj. kr. á sama tímabili í fyrra.
Gæðabakstur ehf.
Félagið kom inn í samstæðu Beru hf. frá og með 1. desember 2025 og kemur því sem hrein viðbót á ársfjórðungnum. EBITDA ársfjórðungsins var 161 millj. kr. samanborið við 158 millj. kr. á sama tímabili í fyrra. Undir lok síðasta árs var Kristjánsbakarí á Akureyri lokað þar sem taprekstur var á Kristjáns á Akureyri. Vörurnar og vörumerkin eru áfram á markaðnum en eru nú framleiddar hjá Gæðabakstri á Lynghálsi.
Kjarnavörur ehf.
Félagið kom inn í samstæðu Beru hf. frá og með 1. desember 2025 og kemur því sem hrein viðbót á ársfjórðungnum. EBITDA ársfjórðungsins var 173 millj. kr. samanborið við 166 millj. kr. á sama tímabili í fyrra. Innan Kjarnavara eru einnig Innbak og Nonni litli. Á tímabilinu keyptu Kjarnavörur alla útistandandi hluti í Innbak og á nú félagið að fullu en fyrir áttu Kjarnavörur 68% hlut. Fyrirhugað er að sameina bakaradeild Danól og Innbak frá og með 1. nóvember undir nafni Innbak. Markmið breytingarinnar er að sameina á einum stað þá umfangsmiklu þekkingu, reynslu og viðskiptatengsl sem byggð hafa verið upp hjá Innbak og Danól á íslenskum bakaramarkaði.
Útflutningur – Iceland Spring ehf og Collab ehf.
Hjá Iceland Spring varð jákvæður viðsnúningur. Óvænt tollasetning í fyrra hafði neikvæð áhrif á reksturinn sem nú eru að koma til baka. EBITDA ársfjórðungsins var 43 millj. kr. samanborið við 15 millj. kr. árið áður. Áhugi frá nýjum mörkuðum er áfram til staðar og fyrirhugað er að auka framleiðslugetu félagsins um allt að þriðjung samhliða endurbótum á framleiðslusal Ölgerðarinnar á Grjóthálsi á næsta ári.
Útflutningur á Collab heldur áfram í Danmörku og Þýskalandi. Dregið var úr markaðsaðgerðum á tímabilinu sem leiðir til bættrar rekstrarafkomu miðað við síðasta ár. EBITDA ársfjórðungsins var -36 millj. kr. samanborið við -108 millj. kr. árið áður. Velta út úr búðum í Danmörku hefur aukist samhliða aukinni dreifingu í samstarfi við nýjan dreifingaraðila. Stefnt er að því að formlegir fjárfestafundir hefjist á þessu ári og væntingar standa til þess að fá fjármagn inn í félagið frá aðila eða aðilum sem taka vegferðina áfram samkvæmt því plani sem hefur áður verið kynnt.
EBITDA eftir félögum (millj. kr.)
| EBITDA | Q2 2026 | Q2 2025 | Breyt. | 6m 2026 | 6m 2025 | Breyt. |
| Ölgerðin | 1.712 | 1.316 | 395 | 2.268 | 2.033 | 235 |
| Danól | 114 | 162 | -48 | 187 | 271 | -85 |
| Gæðabakstur | 161 | – | 161 | 262 | – | 262 |
| Kjarnavörur | 173 | – | 173 | 357 | – | 357 |
| Iceland Spring | 43 | 15 | 28 | 140 | 73 | 67 |
| Collab útflutningur | -36 | -108 | 72 | -81 | -228 | 147 |
| Mýrar | 239 | 209 | 30 | 474 | 416 | 58 |
| Samstæða | 47 | 17 | 30 | 71 | 17 | 54 |
| Bera samstæða | 2.452 | 1.611 | 841 | 3.677 | 2.581 | 1.096 |
Efnahagur 31.08.2026 (millj. kr.)
| Efnahagur | 31.8.2026 | 28.2.2026 | Breyt. | % Breyt |
| Eignir | 46.289 | 44.172 | 2.117 | 5% |
| Eigið fé | 20.232 | 18.417 | 1.815 | 10% |
| Eiginfjárhlutfall | 43,7% | 41,7% | 2,0 pp | |
| Vaxtaberandi skuldir og leigusk. | 15.276 | 15.631 | -354 | -2% |
| Handbært fé | 3.803 | 2.504 | 1.299 | 52% |
| Nettó vaxtaberandi skuldir og leigusk. | 11.474 | 13.127 | -1.653 | -13% |
| EBITDA sl. 12 mán. | 6.103 | 5.007 | 1.096 | 22% |
| NIBD/EBITDA sl. 12 mán. | 1,9 | 2,6 | -0,7 |
Nettó vaxtaberandi skuldir, að viðbættri húsaleiguskuldbindingu, voru 11.474 millj. kr. í lok tímabilsins og lækkuðu um 1.653 millj. kr. frá upphafi fjárhagsársins. Hlutfall nettó vaxtaberandi skulda og EBITDA var 1,9 í lok tímabilsins og lækkaði um 0,7 frá upphafi fjárhagsársins sem skýrist af sterku sjóðstreymi á tímabilinu ásamt því að Gæðabakstur og Kjarnavörur hafa nú verið lengur í samstæðunni. Full áhrif á þessa kennitölu munu sjást eftir næsta ársfjórðung.
Í júní gaf Bera út 2 ma. kr. skráð skuldabréf til tveggja ára sem var fyrsta útgáfa félagsins til lengri tíma en sex mánaða. Útgáfan er liður í að auka hlutdeild markaðsfjármögnunar í fjármögnun félagsins sem er mikilvægt í ljósi mikilla fjárfestinga framundan. Viðtökur fjárfesta við útgáfum félagsins voru áfram góðar.
Meðalvextir skulda samstæðunnar í íslenskum krónum voru 9,6% í lok tímabilsins.
Rekstur 6 mán 2026 (millj. kr.)
| Rekstrarreikningur 6m 2026 | 6m 2026 | 6m 2025 | Breyt. | % Breyt |
| Vörusala | 29.071 | 24.609 | 4.462 | 18% |
| Áfengis- og skilagjald | 6.850 | 6.555 | 295 | 5% |
| Vörunotkun | 10.576 | 9.157 | 1.419 | 16% |
| Annar framleiðslukostnaður | 628 | 489 | 139 | 28% |
| Framlegð | 11.017 | 8.408 | 2.609 | 31% |
| Aðrar tekjur | 29 | 16 | 12 | 76% |
| Laun og launatengd gjöld | 4.251 | 2.843 | 1.408 | 50% |
| Sölu- og markaðskostnaður | 1.644 | 1.683 | -39 | -2% |
| Annar kostnaður | 1.473 | 1.316 | 157 | 12% |
| EBITDA | 3.677 | 2.581 | 1.096 | 42% |
| Afskriftir | 776 | 603 | 173 | 29% |
| EBIT | 2.902 | 1.978 | 923 | 47% |
| Fjármagnsliðir og áhrif hlutdeildarfélaga | 644 | 416 | 228 | 55% |
| Hagnaður fyrir skatta | 2.258 | 1.562 | 696 | 45% |
| Tekjuskattur | 445 | 308 | 138 | 45% |
| Aflögð starfsemi | 5 | 5 | ||
| Hagnaður e skatta | 1.817 | 1.254 | 563 | 45% |
Niðurbrot á EBITDA Beru í millj. kr. (sjá mynd í viðhengdri fréttatilkynningu).
EBITDA breyting milli ára í millj. kr. (sjá mynd í viðhengdri fréttatilkynningu).
Fjárfestingar
Á fyrri árshelmingi fjárfesti félagið fyrir 1.201 millj. kr. í varanlegum rekstrarfjármunum. Útgefin fjárfestingaáætlun ársins stendur óbreytt og er hún 4.550 millj. kr. Á seinni árshelmingi vega þyngst greiðslur vegna lóðar á Hólmsheiði og endurnýjun á einum framleiðslusal Ölgerðarinnar. Þeirri endurnýjun verður lokið á fyrri hluta næsta fjárhagsárs og verður félagið betur í stakk búið til að koma á markað vörunýjungum sem bíða framleiðslu.
Vinna við undirbúning uppbyggingar á Hólmsheiði hefur gengið vel á tímabilinu og í ágúst auglýsti Bera eftir umsóknum í lokað alútboð vegna hönnunar og byggingar vöruhúss og dreifingarmiðstöðvar.
Kjarnavörur keyptu alla útistandandi hluti í Innbak ehf. á tímabilinu og á nú félagið að fullu, en fyrir áttu Kjarnavörur 68% hlut. Kaupverðið var 89 millj. kr. Þá seldu Kjarnavörur Ísbúð Vesturbæjar á tímabilinu. Heildarvirði félagsins í viðskiptunum var 215 millj. kr. en endanlegt kaupverð nam 252 millj. kr. með áhrifum frá veltufé við afhendingu.
Aðrar fréttir af starfseminni
Bera og Ölgerðin undirrituðu í júní samninga um kaup á tilteknum viðskiptasamböndum Karls K. Karlssonar – Bakkus ehf. fyrir 438 millj. kr. Áætlað er að EBITDA vegna þeirra nemi um 100 millj. kr. á ári. Kaupin eru til meðferðar hjá Samkeppniseftirlitinu.
Í september skuldbatt Bera sig til að hækka ekki verð framleiðsluvara dótturfélaganna um áramót umfram 2,5% verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands. Þetta var m.a. gert í þeim tilgangi að sýna aðilum vinnumarkaðarins hvað væri að hámarki í vændum hjá Beru m.v. gildandi kjarasamninga þegar ákvarðanir varðandi hugsanlega uppsögn þeirra yrðu teknar. Innfluttar vörur voru jafnframt lækkaðar vegna styrkingar íslensku krónunnar en verðbreytingar vegna gengishreyfinga fylgja fastmótuðu og þekktu fyrirkomulagi og hefur verið þannig lengi.
Bera hlaut nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki í góðum stjórnarháttum, en sú viðurkenning er veitt af Stjórnvísi, Viðskiptaráði Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Nasdaq Iceland. Ölgerðin hlaut Sjálfbærniásinn þriðja árið í röð en það er samræmdur mælikvarði sem mælir viðhorf íslenskra neytenda til frammistöðu fyrirtækja í sjálfbærnimálum.
Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri:
„Annar ársfjórðungur var rekstrarlega sá sterkasti frá upphafi. Góður vöxtur í tekjum og aðhald í rekstri skila sér í auknum rekstrarhagnaði sem er mjög ánægjulegt. Nýju félögin í samstæðu Beru, Gæðabakstur og Kjarnavörur, koma jafnframt vel inn í rekstur samstæðunnar þar sem þegar hafa náðst umtalsverð samlegðaráhrif, m.a. í innkaupum og margskonar stoðþjónustu. Það var ánægjulegt að geta gefið út hámark á hækkun framleiðsluvara um áramótin í baráttunni við þráláta verðbólgu í landinu. Venjulega er verðskráin endurskoðuð í byrjun desember en því er nú flýtt til að skapa meiri fyrirsjáanleika fyrir aðila vinnumarkaðarins. Jafnframt skilaði gengisstyrking íslensku krónunnar sér áfram til okkar viðskiptavina eins og ávallt, en verð á innfluttum vörum lækkaði núna í september, sem dæmi lækkaði verð vörum keyptum inn í evrum um 3,4%. Jákvæður viðsnúningur hjá útflutningsfyrirtækjunum skilaði sér í rekstrarniðurstöðuna sem var afar ánægjulegt.“
Kynningarfundur vegna uppgjörsins verður haldinn 8. október kl 16:30. Afkomutilkynning fyrir tímabilið 1. mars 2026 – 30. nóvember 2026 verður birt 17. desember 2026.
Nánari upplýsingar veita:
Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri, í síma 820-6491
Óskar Ingi Magnússon, fjármálastjóri, í síma 665-8181