Måndag 29 Juni | 17:05:14 Europe / Stockholm
Est. tid*
2026-04-29 - X-dag ordinarie utdelning OLGERD 0.00 ISK
2023-04-18 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-12 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-11 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-05-19 - Årsstämma
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Bera är ett isländskt bryggeri och dryckesbolag. Bolaget producerar, importerar, distribuerar och säljer drycker och livsmedel över hela Island. Utbudet är brett och inkluderar bland annat vin, öl, sprit och alkoholfritt. Produkterna återsäljs även runtom den internationella marknaden. Bolaget grundades år 1913 och har sitt huvudkontor i Reykjavik.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Bera hf.: Kaup á viðskiptasamböndum af Karli K. Karlssyni – Bakkus ehf.

2026-06-29 12:10:24

Skrifað hefur verið undir samning um kaup Beru á tilteknum viðskiptasamböndum Karls K. Karlssonar – Bakkus ehf., ásamt tilheyrandi söluhæfum birgðum. Með kaupunum er ráðgert að Bera og tengd félög taki yfir viðskiptasambönd við allt að 21 birgi.

Þá hefur Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf. (Ölgerðin), eitt af dótturfélögum Beru, undirritað samning um kaup viðskiptasambands og tengdra vörubirgða af Karli K. Karlssyni – Bakkus ehf.

Samanlagt kaupverð hins selda samkvæmt samningunum nemur um 438 millj. kr. (auk vsk.), sem greiðist með reiðufé á afhendingardegi eða eftir atvikum sex mánuðum eftir afhendingardag. Söluhæfar vörubirgðir verða keyptar á kostnaðarverði.

Karl K. Karlsson – Bakkus ehf. er innflutningsfyrirtæki á sviði áfengis og dagvöru. Er salan liður í skipulagðri einföldun á starfsemi félagsins. Seljandi mun styðja við yfirfærslu umboða og tengdra viðskiptasambanda til að tryggja samfellu í þjónustu og rekstri.

Viðskiptasamböndin falla vel að vöruframboði Ölgerðarinnar og Danól ehf., sem einnig er dótturfélag Beru, en EBITDA félaganna vegna viðskiptasambandanna er áætluð um 100 mkr. á ári.

Kaupin samkvæmt hvorum samningi um sig eru gerð með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda og eru enn fremur háð samþykki viðkomandi birgja, eftir því sem við á.

Quantum ehf. og ARTA lögmenn voru ráðgjafar seljanda við viðskiptin, en LOGOS ráðgjafi kaupanda.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Þorsteinn Oddleifsson, forstjóri, í síma 820-6491