Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Handel & varor |
| Industri | Dagligvaror |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Bera hf. (hér eftir „félagið“) hefur móttekið tilkynningar tveggja kaupréttarhafa um nýtingu kauprétta sem voru gefnir út árið 2023 og urðu nýtanlegir að hluta hinn 21. apríl 2026. Um er að ræða nýtingu kauprétta að samtals 1.600.000 nýjum hlutum í félaginu.
Stjórn hefur nýtt heimild sína samkvæmt 2. mgr. 4. gr. samþykkta félagsins, til að hækka hlutafé félagsins í þeim tilgangi að mæta nýtingu framangreindra kauprétta. Hlutafé félagsins hefur því verið hækkað um 1.600.000 kr., með útgáfu nýrra hluta, og mun eftir hækkun standa í 2.865.815.413 kr. að nafnverði. Hver hlutur er að fjárhæð ein króna og fylgir hverjum hlut eitt atkvæði.
Hlutafjárhækkunin verður tilkynnt til fyrirtækjaskrár Skattsins og hinir nýju hlutir verða að lokinni skráningu gefnir út af Nasdaq CSD og teknir til viðskipta á aðalmarkaði Nasdaq Iceland.