14:13:16 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2025-02-27 Bokslutskommuniké 2024
2024-11-21 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-29 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-23 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-21 Årsstämma 2024
2024-02-22 Bokslutskommuniké 2023
2023-11-16 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-17 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-23 Årsstämma 2023
2023-02-23 Bokslutskommuniké 2022
2021-02-25 Bokslutskommuniké 2020
2020-11-19 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-20 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-20 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-05 Ordinarie utdelning BRIM 0.00 ISK
2020-03-31 Årsstämma 2020
2020-02-27 Bokslutskommuniké 2019
2019-05-10 Ordinarie utdelning BRIM 0.00 ISK
2019-02-27 Bokslutskommuniké 2018
2018-11-28 Kvartalsrapport 2017-Q3
2018-08-29 Kvartalsrapport 2017-Q2
2016-04-01 Ordinarie utdelning BRIM 1.70 ISK
2011-04-29 Årsstämma 2011

Beskrivning

LandIsland
ListaLarge Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDagligvaror
Brim erbjuder ett brett utbud av fisk och skaldjur. Idag är bolaget verksamma inom hela värdekedjan, från fångst, bearbetning till slutlig distribution. Råvarorna säljs under eget varumärke på global nivå, både som färsk och fryst vara och inkluderar huvudsakligen torsk, kolja, sill och fiskrom. Störst marknad återfinns inom Europa, Asien och Nordamerika.
2022-03-24 19:52:16

Niðurstöður aðalfundar 24. mars 2022

Aðalfundur samþykkti ársreikning félagsins.


Fundurinn samþykkti eftirtaldar tillögur:

Tillaga um greiðslu arðs

Samþykkt að arðgreiðsla á árinu 2022 vegna rekstrarársins 2021 verði 2,1 kr. á hlut í arð til hluthafa, eða 4.034 millj. kr. (um 27,3 millj. evra á lokagengi ársins 2021), eða 2,7% af markaðsvirði hlutafjár í lok árs 2021. Arðurinn verði greiddur 29. apríl 2022. Síðasti viðskiptadagur þar sem arður fylgir bréfunum er 24. mars 2022 og arðleysisdagur því 25. mars 2022. Arðsréttindadagur er 28. mars 2022. Arður greiðist þeim sem skráðir eru í hlutaskrá félagsins í lok arðsréttindadags.

Tillaga um starfskjarastefnu

Samþykkt óbreytt starfskjarastefna

Ákvörðun um þóknun stjórnarmanna

Samþykkt að þóknun næsta starfsárs til stjórnarmanna verði 330.000 kr. á mánuði, varaformaður fái einn og hálfan hlut og formaður tvöfaldan hlut.

Kosning stjórnar félagsins

Stjórn var sjálfkjörin þar sem frambjóðendur voru jafnmargir og þeir stjórnarmenn sem kjósa á um á fundinum og samsetning stjórnar fullnægir ákvæðum laga og samþykkta félagsins um kynjahlutföll. Stjórnina skipa: Anna G. Sverrisdóttir, Hjálmar Þ. Kristjánsson, Kristján Þ. Davíðsson, Kristrún Heimisdóttir og Magnús Gústafsson.

Á fyrsta stjórnarfundi nýrrar stjórnar skipti stjórnin með sér verkum og skipaði í nefndir. Formaður stjórnar er Kristján Þ. Davíðsson og varaformaður stjórnar er Anna G. Sverrisdóttir. Endurskoðunarnefnd: Gunnar Ásgeirsson formaður, Anna G. Sverrisdóttir og Kristrún Heimisdóttir. Starfskjaranefnd: Magnús Gústafsson formaður, Kristján Þ. Davíðsson og Kristrún Heimisdóttir. Þóknun nefndarmanna í undirnefndum næsta starfsár verður 110.000 kr. á mánuði.

Kosning endurskoðenda

Samþykkt að endurskoðandi félagsins fyrir næsta starfsár verði Deloitte ehf.

Tillaga um að stjórn fái heimild til kaupa á eigin bréfum

Aðalfundur veitir stjórn félagsins heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimild þessi stendur í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupgengi má eigi vera hærra en í síðustu óháðu viðskiptum eða hæsta fyrirliggjandi óháða kauptilboð í þeim viðskiptakerfum þar sem viðskipti með hlutina fara fram, hvort sem hærra er. Heimild þessi skal aðeins nýtt í þeim tilgangi að koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum. Aðrar eldri heimildir til kaupa á eigin bréfum falla úr gildi við samþykkt heimildar þessarar.


Viðhengi:

Samþykkt starfskjarastefna