Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Handel & varor |
| Industri | Dagligvaror |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á aðalfundi Brims hf. (Brim eða félagið) sem haldinn var þann 19. mars 2026 var samþykkt að veita stjórn, fyrir hönd félagsins, heimild til að kaupa á næstu 18 mánuðum, frá samþykkt, hlutabréf í félaginu fyrir allt að 10% af heildarhlutafé félagsins í þeim tilgangi að „koma á formlegri endurkaupaáætlun eða til þess að gera hluthöfum almennt tilboð um kaup félagsins á eigin bréfum, t.d. með útboðsfyrirkomulagi, enda sé jafnræðis hluthafa gætt við boð um þátttöku í slíkum viðskiptum.“ Tilgangur viðskiptanna er að tryggja félaginu eigin hluti til frekari vaxtar og fjárfestinga.
Líkt og tilkynnt hefur verið bíður Brim hluthöfum kaup á hlutabréfum að nafnvirði 70 milljónir króna að nafnverði á genginu 88 kr. fyrir hvern hlut. Samanlagt kaupverð hluta af hálfu Brims getur því að hámarki numið 6.160.000.000 kr. Arctica Finance hf. hefur umsjón með viðskiptum. Kaupgengi endurspeglar verð í síðustu óháðu viðskiptum.
Samið hefur verið við Arctica Finance hf. hf. (Arctica) um að annast móttöku samþykkis tilboða frá hluthöfum Brims. Allir hluthafar Brims, sem skráðir eru í hlutaskrá eftir lok viðskipta föstudaginn 29. maí 2026, geta samþykkt tilboð Brims um að Brim kaupi af þeim þeirra fyrir milligöngu markaðsviðskipta Arctica.
Komi til þess að eftirspurn vegna tilboðs Brims verði umfram hámarksfjárhæð tilboðs félagsins samkvæmt framangreindu mun Brim kaupa í hlutfalli við eignarhlutfall þeirra hluthafa sem taka þátt (e. pro rata).
Heimild stjórnar Brims er í samræmi við viðeigandi lög og reglur, þ.á m. lög um hlutafélög nr. 2/1995 og reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sem hefur lagagildi hér á landi, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021. Vilji hluthafar samþykkja tilboð Brims skal skila samþykkiseyðublaði til markaðsviðskipta Arctica á netfangið brim@arctica.is, en eyðublaðið má nálgast á sama netfang. Samþykki tilboða frá hluthöfum Brims verða að hafa borist fyrir kl. 18:00 mánudaginn 1. júní 2026.
Niðurstöður verða tilkynntar í fréttakerfi Nasdaq Iceland fyrir kl. 09:30, 2. júní 2026. Uppgjörsdagur samþykktra tilboða er miðvikudagurinn 3. júní 2026. Við dagsetningu tilkynningar þessarar á Brim 30.532.917 sem samsvarar 1,56% af heildarhlutafé félagsins. Við það munum bætast 20.700.000 hlutir við uppgjör á sölu á Melanesi ehf. en þá mun félagið eiga sem samsvarar 2,62%.