Brim hf.: Útboð á nýjum skuldabréfaflokki
Brim hf. (“BRIM”) efnir til útboðs á skuldabréfum þriðjudaginn 15. september næstkomandi. Boðin verða til sölu skuldabréf í nýjum flokki BRIM 29 09.
Skuldabréfaflokkurinn BRIM 29 09 er með einni afborgun höfuðstóls á lokagjalddaga og ber fljótandi vexti tengdum 3 mánaða REIBOR-vöxtum að viðbættu 1,30% vaxtaálagi. Greiðslur vaxta eru á þriggja mánaða fresti, fyrst þann 22. desember 2026. Ein greiðsla höfuðstóls verður á lokagjalddaga. Útgáfudagur er fyrirhugaður þriðjudaginn 22. september 2026.
Skuldabréfin eru gefin út í 20 m.kr. nafnverðseiningum og fyrirhugað er að skrá skuldabréfaflokkinn á Aðalmarkað Nasdaq Iceland eigi síðar en 6 mánuðum frá útgáfudegi. Nasdaq Iceland mun tilkynna töku til viðskipta eigi síðar en með eins dags fyrirvara.
Lokagjalddagi flokksins er 22. september 2029.
Útboðið verður með föstum kjörum eða hreina verðinu 100,00 og eru fjárfestar beiðnir um að skila inn magntilboði.
Tilkynnt verður um niðurstöðu útboðsins og úthlutun til fjárfesta þegar niðurstaða liggur fyrir, þó eigi síðar en fyrir opnun markaða miðvikudagurinn 16. september 2026 og er uppgjör og afhending áætlað þriðjudaginn 22. september 2026.
Félagið áskilur sér rétt til þess að samþykkja öll tilboð, hafna öllum tilboðum eða taka öllum tilboðum að hluta.
Íslandsbanki hf. hefur umsjón með útboðinu. Tilboðum, þar sem fram koma upplýsingar um tilboðsfjárhæð, skal skilað til Verðbréfamiðlunar Íslandsbanka fyrir kl. 16:00, þriðjudaginn 15. september 2026 á netfangið vbm@islandsbanki.is
Útboðið er undanþegið gerð lýsingar á grundvelli c og d liðar, 4. mgr. 1. gr. lýsingarreglugerðar sem innleidd var með lögum nr. 14/2020, um sama efni.
Nánari upplýsingar veita:
Verðbréfamiðlun Íslandsbanka, netfang, vbm@islandsbanki.is
Inga Jón Friðgeirsdóttir fjármálastjóri Brims hf., ingajona@brim.is