Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Handel & varor |
Industri | Dagligvaror |
2023-08-22 16:57:39
Brim hf. mun birta uppgjör fyrir annan ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða fimmtudaginn 24. ágúst.
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta verður haldinn fimmtudaginn 24. ágúst klukkan 16:30 í höfuðstöðvum félagsins að Norðurgarði 1.
Guðmundur Kristjánsson forstjóri félagsins kynnir uppgjör fjórðungsins og svarar spurningum.
Fundinum verður jafnframt streymt og hægt verður að fylgjast með honum á www.brim.is/streymi. Velkomið er að senda spurningar fyrir fundinn eða á meðan fundi stendur á netfangið fjarfestatengsl@brim.is. Aðsendum spurningum verður svarað í lok fundar.
Nánari upplýsingar veitir Inga Jóna Friðgeirsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs í síma 858-1170 eða fjarfestatengsl@brim.is