Bifogade filer
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Handel & varor |
Industri | Dagligvaror |
Aðalfundur Brims hf. verður haldinn fimmtudaginn 24. mars 2022 með rafrænum hætti auk þess sem hluthöfum gefst kostur á að mæta til fundarins en fundurinn fer fram í matsal félagsins að Norðurgarði 1, 101 Reykjavík.
Ekki eru breytingar á áður birtri dagskrá eða tillögum.
Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn, hvort sem er rafrænt eða á staðnum, eru beðnir um að skrá sig tímanlega á vefsíðunni www.lumiconnect.com/meeting/brim eigi síðar en kl. 17.00 þann 23. mars, eða degi fyrir fundardag. Með innskráningu þarf að fylgja mynd af skilríkjum og umboð, ef við á.
Atkvæðagreiðsla á fundinum mun alfarið fara fram með rafrænum hætti í gegnum Lumi AGM. Hluthöfum stendur jafnframt til boða að kjósa um dagskrármál með skriflegum hætti eða veita umboð. Á vefsíðu félagsins má finna viðeigandi eyðublöð. Eigi síðar en einum degi fyrir aðalfund þarf beiðni hluthafa um að kjósa með skriflegum hætti að berast félaginu.
Fundurinn fer fram á íslensku og hefst klukkan 17:00.
Allar nánari upplýsingar um aðalfundinn má finna á vefsíðu félagsins https://www.brim.is/is/brim/fjarfestar/adalfundur/
Dagskrá og tillögur stjórnar ásamt nánari upplýsingum má finna í meðfylgjandi viðhengi.