Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Handel & varor |
| Industri | Dagligvaror |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Stjórn Brims hf. hefur samþykkt kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna. Tilkynnt var um samþykki við kauptilboði Brims þann 23. september 2025 með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Endursamið hefur verið um verð og greiðslukjör í viðskiptunum sem tekur m.a. tillit til vaxtaberandi skulda. Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim og er miðað við gengið 85 kr. á hvern hlut í félaginu þannig að seljendur eignast í kjölfar viðskiptanna 117.647.058 hluti sem samsvarar um 6% af heildarhlutafé Brims nái félagið að nýta eigin bréf í þágu viðskiptanna. Kaupverðið verður allt greitt að fullu þegar viðskiptin verða frágengin að fengnu samþykki opinberra aðila.