Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Árshlutareikningur Eikar fasteignafélags hf. fyrir tímabilið 1. janúar til 31. mars 2026 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins þann 7. maí 2026.
Meðfylgjandi er árshlutaskýrsla sem inniheldur árshlutareikning vegna fyrstu þriggja mánaða ársins 2026 ásamt ítarlegri upplýsingum um rekstur félagsins en fram koma í tilkynningunni.
Helstu niðurstöður árshlutareikningsins eru:
- Rekstrartekjur námu 3.509 m.kr.
- Þar af námu leigutekjur 3.094 m.kr.
- Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir nam 2.206 m.kr.
- Heildarhagnaður nam 977 m.kr.
- Handbært fé frá rekstri nam 1.474 m.kr.
- Bókfært virði fjárfestingareigna nam 175.182 m.kr.
- Matsbreyting fjárfestingareigna var 2.669 m.kr.
- Söluhagnaður fjárfestingareigna nam 26 m.kr.
- Handbært fé nam 3.472 m.kr.
- Vaxtaberandi skuldir námu 106.226 m.kr.
- Nettó skuldsetningarhlutfall (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, lóða og byggingarheimildina) nam 58,6%
- Hagnaður á hlut var 0,29 kr.
- Virðisútleiguhlutfall var 94,8%.
- Vegnir verðtryggðir vextir námu 3,72%.
- Vegnir óverðtryggðir vextir námu 9,52%.
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri:
„Árið fer vel af stað, við sjáum góðan vöxt í leigutekjum, erum að taka góð skref í fjármögnun félagsins og höldum áfram að skerpa á eignasafni okkar.
Festing stendur undir tekjuvexti fjórðungsins. Tök eru komin á rekstur Festingar og gekk innleiðing félagsins fumlaust fyrir sig inn í innviði okkar.
Fjármögnun hefur gengið vel á árinu. Útgáfuáætlun sem birt var í byrjun árs fór vel í fjárfesta. Þrír skuldabréfaflokkar hafa verið gefnir út það sem af er ári, sem ganga allir út á það sama — að jafna endurgreiðsluferil Eikar. Einn þeirra, sem verður hryggjarstykkið í útgáfum okkar fram á veginn, EIK 120266, er einn lengsti skuldabréfaflokkur kauphallarinnar. Árangur í útgáfu þess flokks er mikil traustsyfirlýsing markaðarins. Enn fremur eru skuldabréfafjárfestum boðnar mismunandi afurðir sem henta ólíkum þörfum. Útgáfa mun halda áfram í samræmi við áætlun félagsins.
Byggingarverkefni við Eyraveg á Selfossi var selt, og klárum við þar með mjög vel heppnaða þróun á eign sem áður hýsti starfsemi Húsasmiðjunnar. Íbúðarverkefnið var þróað af Eik þar sem skipulagi var breytt og byggingarmagn fyrir íbúðarhúsnæði samþykkt á lóðinni. Suðurlandsbraut 20 var einnig seld — félagið átti helminginn af húsinu en vildi annaðhvort eiga það allt eða selja. Niðurstaðan var að selja. Eignasafnið verður áfram ítrað, við höfum myndað okkur skoðun á hverri einustu eign í safninu auk þess sem við viljum vera virk á kauphliðinni með skýra fjárfestingastefnu og arðsemismarkmið."
Rekstur félagsins
Rekstur Eikar gekk áfram vel á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 og var EBITDA við efri mörk afkomuspár. Rekstrartekjur félagsins námu 3.509 m.kr., þar af voru leigutekjur 3.094 m.kr. og jukust þær um 19,5% samanborið við sama tímabil á árinu 2025. Rekstrarkostnaður nam 1.303 m.kr.
Rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu, söluhagnað og afskriftir jókst um 21,4% miðað við sama tímabil í fyrra og nam 2.206 m.kr. Hagnaður fyrir tekjuskatt nam 1.221 m.kr. og heildarhagnaður samstæðunnar á tímabilinu nam 977 m.kr.
NOI hlutfall (þ.e. rekstrarhagnaður fyrir matsbreytingu og afskriftir) nam 70,7% á fyrstu þremur mánuðum ársins 2026 samanborið við 69,6% á sama tímabili árið áður.
Efnahagur félagsins
Heildareignir félagsins námu 186.143 m.kr. þann 31. mars 2026. Þar af eru fjárfestingareignir að virði 175.182 m.kr. og eignir til eigin nota námu 5.390 m.kr. Eigið fé félagsins nam 55.738 m.kr. í lok tímabilsins. Nettó skuldsetningarhlutfall félagsins (nettó vaxtaberandi skuldir / virði fasteigna, byggingarheimilda og lóða) var 58,6%. Á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2026 var samþykkt að greiða út arð til hluthafa vegna rekstrarársins 2025 að fjárhæð 3.732,74 m.kr. og að hann verði greiddur í tveimur greiðslum. Útborgunardagur vegna fyrri greiðslunnar var 28. apríl 2026 og verður 14. október 2026 vegna seinni greiðslunnar.
Heildarskuldir félagsins námu 130.405 m.kr. þann 31. mars 2026. Þar af voru vaxtaberandi skuldir 106.226 m.kr. og tekjuskattsskuldbinding 15.792 m.kr.
Það sem liðið er af árinu hefur félagið gefið út þrjá nýja skuldabréfaflokka í fjórum útboðum. Samtals voru gefin út skuldabréf að nafnvirði 3.700 m.kr. í flokki EIK 120266, 3.980 m.kr. í EIK 150531 og 3.060 m.kr. í EIK 29 1. Jafnframt hefur félagið keypt til baka skuldabréf að nafnvirði 1.880 m.kr. í flokki EIK 050726, sem er á lokagjalddaga í júlí 2026.
Uppgjör vegna útboða í EIK 150531 og EIK 29 1, sem og 880 m.kr. af endurkaupum í EIK 050726, fór fram í apríl 2026 ásamt því að félagið greiddi rúmlega 2.700 m.kr. inn á bankafjármögnun í sama mánuði. Þá hefur félagið fengið samþykkt endurfjármögnun á láni Festingar upp á tæplega 5.300 m.kr. til febrúar 2028 en fyrra lán var með lokagjalddaga í febrúar 2027. Staða vaxtaberandi skulda í lok tímabilsins endurspeglar því ekki þessa breytingu á fjármögnun.
Eignasafn félagsins
Félagið seldi eignina Suðurlandsbraut 20 í mars síðastliðinn en afhending fer fram á þriðja ársfjórðung, stærð fasteignarinnar er um 1.288 m2. Þá seldi félagið einnig íbúðarhúsalóð við Fossveg 3 (áður Eyraveg 44) á Selfossi. Söluhagnaður af seldum eignum á tímabilinu nam 26 m.kr.
Uppbygging á 2.600 m2 iðnaðarhúsnæði við Jötnahellu 5 miðar vel áfram og er gert ráð fyrir afhendingu á fyrri helmingi ársins 2027.
Nánari umfjöllun um eignasafn félagsins má finna í meðfylgjandi árshlutaskýrslu.
Óbreyttar horfur
Að teknu tilliti til breytinga á vísitölu neysluverðs eru horfur óbreyttar.
- Rekstrartekjur ársins eru áætlaðar á bilinu 14.450 – 15.050 m.kr.
- EBITDA ársins er áætluð á bilinu 9.180 – 9.550 m.kr.
Horfur miðast við vísitölu neysluverðs í apríl 2026.
Kynningarfundur
Opinn kynningarfundur fyrir markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 8. maí 2026 klukkan 8:30 á skrifstofu félagsins á 18. hæð i Smáratorgi 3. Boðið verður upp á léttan morgunmat frá kl. 8.00. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu.
Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér:
https://vimeo.com/event/5909538/65f60f8b32
Eftir skráningu fá þátttakendur tölvupóst með nánari upplýsingum.
Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Breytt fjárhagsdagatal
Stefnt er að birtingu árshluta- og ársuppgjöra á neðangreindum dagsetningum:
Árshlutauppgjör 2. ársfjórðungs 18. ágúst 2026
Árshlutauppgjör 3. ársfjórðungs 5. nóvember 2026
Ársuppgjör 2026 11. febrúar 2027
Aðalfundur 8. mars 2027
Birting fjárhagsupplýsinga mun eiga sér stað eftir lokun markaða. Vakin er athygli á breyttri dagsetningu ársuppgjörs félagsins.
Nánari upplýsingar veita:
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, hreidar@eik.is
Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980