Eik fasteignafélag hf.: Birting uppgjörs fyrstu sex mánaða ársins 2026 þann 18. ágúst nk.
2026-08-13 18:19:28
Eik fasteignafélag hf. mun birta uppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026 eftir lokun markaða þriðjudaginn 18. ágúst nk. Kynningarfundur verður haldinn á skrifstofu félagsins að Smáratorgi 3, 18. hæð, 19. ágúst nk. klukkan 8:30. Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri og Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, munu kynna uppgjörið og svara spurningum að lokinni kynningu. Boðið verður upp á léttan morgunverð frá klukkan 8:00.
Fundinum verður einnig streymt á netinu og fer skráning á rafræna fundinn fram hér: Fjárfestakynning Eikar fasteignafélags - 1H 2026
Markaðsaðilar geta sent spurningar fyrir fundinn á netfangið fjarfestatengsl@eik.is.