Måndag 27 Juli | 11:41:36 Europe / Stockholm

Eik fasteignafélag hf.: Boðun aðalfundar árið 2026

2026-03-24 17:28:16

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.

Meðfylgjandi er fundarboð með dagskrá aðalfundar félagsins auk tillagna stjórnar, skýrslu tilnefningarnefndar og annarra skjala sem varða aðalfundinn. Vakin er athygli á upplýsingum í fundarboði um fyrirkomulag rafrænnar forskráningar sem og á tillögum um breytingar á starfskjarastefnu félagsins, samþykktum félagsins ásamt kaupréttaráætlun og kaupréttarkerfi stjórnenda. Jafnframt er vakin sérstök athygli á meðfylgjandi bréfi forstjóra til hluthafa.

Ársskýrsla, sem inniheldur ársreikning 2025, hefur þegar verið birt og sjálfbærniskýrsla er aðgengileg á heimasíðu félagsins ásamt öðrum fundargögnum.