Kurs & Likviditet
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Eik fasteignafélag hf. hefur náð saman við viðskiptavaka félagsins, Arion banka og Kviku banka, um breytingar á samningum um viðskiptavakt á hlutabréfum útgefnum af félaginu í Kauphöll Íslands, Nasdaq Iceland.
Breytingar á skilmálum viðskiptavaktar Arion banka eru eftirfarandi:
Samningurinn kveður á um að Arion banki skuli dag hvern leggja fram kaup- og sölutilboð í hlutabréf útgefin af félaginu í viðskiptakerfi Kauphallar Íslands. Fjárhæð kaup- og sölutilboða viðskiptavaka skal að lágmarki nema kr. 1.000.000 hlutum að nafnverði (þó skal fjárhæð hvers boðs aldrei nema hærri fjárhæð en 15.000.000 kr. að markaðsverði). Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið s.s. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.
Breytingar á skilmálum viðskiptavaktar Kviku banka eru eftirfarandi:
Verðbil kaup- og sölutilboða skal ákvarðað með hliðsjón af verðskrefatöflu Kauphallarinnar eins og hún er hverju sinni þannig að verðbil verði sem næst 1,5% en þó ekki minna en 1,45%. Þó skal viðskiptavaka vera heimilt að fara tímabundið undir framangreint viðmið s.s. vegna aðstæðna sem skapast vegna verðskrefatöflu Kauphallarinnar.
Framangreint gildir frá og með 1. september 2021. Samningarnir eru ótímabundnir og uppsegjanlegir af hálfu hvors aðila að þeim með 14 daga fyrirvara.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, lydur@eik.is, s: 590-2209 / 820-8980