Måndag 27 Juli | 11:41:36 Europe / Stockholm

Eik fasteignafélag hf.: Framboð til stjórnar 2026

2026-04-09 19:27:38

Aðalfundur Eikar fasteignafélags hf. verður haldinn kl. 15:00 fimmtudaginn 16. apríl 2026, á BRASA, Turninum Smáratorgi 3, 201 Kópavogi.

Framboðsfrestur til stjórnar félagsins rann út í dag, 9. apríl kl. 15:00. Eftirtalin hafa gefið kost á sér til setu í stjórn félagsins:

- Bjarni Kristján Þorvarðarson

- Eyjólfur Árni Rafnsson

- Gunnar Þór Gíslason

- Katrín Jakobsdóttir

- Ragnheiður Harðar Harðardóttir

Stjórn hefur metið öll framboð til stjórnar gild, sbr. 63. gr. a. laga um hlutafélög nr. 2/1995. Samkvæmt samþykktum félagsins skal stjórnin skipuð fimm mönnum. 

Nánari upplýsingar um frambjóðendur eru í viðhengi auk skýrslu tilnefningarnefndar.

Hluthafar eða umboðsmenn hluthafa sem hafa hug á því að sækja fundinn eru beðnir um að forskrá sig tímanlega á eftirfarandi vefslóð: www.lumiconnect.com/events/eikagm2026 og ekki seinna en kl. 15:00 miðvikudaginn 15. apríl 2026. Atkvæðisréttur fylgir eingöngu þeim hluthöfum sem mæta á fundinn. Aðstoð við skráningu á aðalfundinn er hægt að fá með því að senda tölvupóst á stjornun@eik.is