Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Í samræmi við starfskjarastefnu Eikar fasteignafélags hf. hefur félagið nú gengið frá samningum um kauprétti starfsmanna í félaginu á grundvelli kaupréttaráætlunar samkvæmt 10. gr. laga nr. 90/2003 um tekjuskatt. Tilgangur og markmið kaupréttaráætlunar er að samþætta hagsmuni starfsfólks við langtímamarkmið félagsins.
Kaupréttaráætlunin var samþykkt á aðalfundi félagsins þann 16. apríl 2026 og staðfest af Ríkisskattstjóra þann 28. apríl 2026.
Kaupverð í kaupréttarsamningunum er 14,12 kr. á hlut sem jafngildir vegnu meðalgengi í viðskiptum með hluti í félaginu á Nasdaq Iceland síðustu tíu viðskiptadaga fyrir undirritun kaupréttarsamninga.
Starfsmönnum er heimilt að kaupa hluti í félaginu fyrir samtals allt að kr. 7.500.000 í fimm áföngum á fimm árum frá gerð kaupréttarsamnings, þ.e. allt að kr. 1.500.000 á ári í fimm ár. Samkvæmt kaupréttaráætlun öðlast starfsmaður rétt til að kaupa hluti í Eik fasteignafélagi í fyrsta sinn þann 15. maí 2027.
Kaupréttir falla almennt niður ef ráðningarsambandi við félagið er slitið fyrir lok ávinnslutíma. Þá er félaginu við tilteknar aðstæður heimilt að fella niður kaupréttaráætlunina og þau réttindi og skyldur sem af henni má leiða.
Heildarfjöldi kauprétta samkvæmt framangreindu er áætlað um 0,9% af útgefnu hlutafé m.v. fulla nýtingu öll 5 árin og 35 starfsmenn.
Upplýsingar um veitta kauprétti til stjórnenda eru í viðhengi.