Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Fastigheter |
| Industri | Förvaltning |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk skiptiútboði á skuldabréfum miðvikudaginn 25. febrúar 2026, þar sem boðinn var til sölu skuldabréfaflokkurinn EIK 120266.
| Flokkur | EIK 120266 |
| Greiðslu- og uppgjörsdagur | 04.03.2026 |
| Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) | 1.200 |
| Samþykkt (ávöxtunarkrafa) | 3,80% |
| Fjöldi innsendra tilboða | 2 |
| Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) | 1.200 |
| Fjöldi samþykktra tilboða | 2 |
| Vegið meðaltal innsendra tilboða (ávöxtunarkrafa) | 3,78% |
| Boðhlutfall | 1,00 |
Alls bárust gild tilboð að nafnverði 1.200 m.kr., og var ákveðið að taka tilboðum að nafnverði 1.200 m.kr. á 3,80% ávöxtunarkröfu.
Þetta var annað útboðið í skuldabréfaflokknum og er heildarstærð flokksins 3.700 m.kr. að nafnverði eftir útboðið.
Í skiptiútboðinu voru afhent skuldabréf í flokknum EIK 050726 að nafnverði 1.000 m.kr. Greiðsla fyrir skuldabréf í flokknum fer fram með afhendingu ofangreindra skuldabréfa og verður uppgjörsmismunur greiddur með reiðufé við uppgjör.
EIK 120266 er verðtryggt jafngreiðslubréf (e. annuity) með tveimur afborgunum á ári. Lokagjalddagi er í febrúar 2066.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Hreiðar Már Hermannsson, forstjóri, hreidar@eik.is, s. 590-2200
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980