Eik fasteignafélag hf.: Niðurstaða útboðs skuldabréfa
Eik fasteignafélag hf. („Eik“) lauk í dag útboði á skuldabréfaflokkunum EIK 29 1 og EIK 120266.
Í útboðinu bárust tilboð að heildarnafnvirði 680 m.kr. í EIK 29 1 og 900 m.kr. í EIK 120266. Ákveðið var að taka tilboðum að nafnvirði 440 m.kr. í EIK 29 1 á genginu 98,9336 og tilboðum að nafnvirði 900 m.kr. í EIK 120266 á ávöxtunarkröfunni 4,05%.
Niðurstaða útboðs:
| Flokkur | EIK 29 1 | EIK 120266 |
| Áætlaður greiðslu- og uppgjörsdagur | 4.11.2026 | 4.11.2026 |
| Samþykkt tilboð að nafnverði (m.kr.) | 440 m.kr. | 900 m.kr. |
| Samþykkt (verð / ávöxtunarkrafa) | 98,9336 | 4,05% |
| Fjöldi innsendra tilboða | 5 | 3 |
| Upphæð móttekinna tilboða að nafnverði (m.kr.) | 680 m.kr. | 900 m.kr. |
| Fjöldi samþykktra tilboða | 4 | 3 |
| Vegið meðaltal innsendra tilboða (verð / ávöxtunarkrafa) | 98,9612 | 4,042% |
| Boðhlutfall | 1,55 | 1,00 |
Þetta var fjórða útboðið í skuldabréfaflokknum EIK 29 1 og er heildarstærð flokksins 5.000 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið og er hámarksstærð flokksins náð.
Þetta var fimmta útboðið í EIK 120266 og er heildarstærð flokksins 6.700 m.kr. að nafnvirði eftir útboðið.
Markaðsviðskipti Arion banka höfðu umsjón með útboðinu.
Nánari upplýsingar veitir:
Lýður Heiðar Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármála og UT, lydur@eik.is, s. 820-8980