Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Í 49. viku 2024 keypti Eik fasteignafélag hf. 6.805.000 eigin hluti fyrir ISK 93.840.950 eins og hér segir:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
2.12.2024 | 10:39 | 1.361.000 | 13,85 | 18.849.850 | 11.522.000 |
3.12.2024 | 10:23 | 1.361.000 | 13,70 | 18.645.700 | 12.883.000 |
4.12.2024 | 09:52 | 1.361.000 | 13,90 | 18.917.900 | 14.244.000 |
5.12.2024 | 09:38 | 1.361.000 | 13,90 | 18.917.900 | 15.605.000 |
6.12.2024 | 10:42 | 1.361.000 | 13,60 | 18.509.600 | 16.966.000 |
6.805.000 | 93.840.950 |
Kaupin eru í samræmi við endurkaupaáætlun sem var hrint í framkvæmd 29. nóvember 2024, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 28. nóvember 2024. Endurkaupin munu að hámarki nema samtals 300 milljónum króna að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til framangreindu viðmiði er náð, en þó aldrei lengur en til 31. janúar 2025.
Eik átti 10.161.000 eigin hluti fyrir viðskiptin en á að þeim loknum 16.966.000 eða sem nemur 0,50% af útgefnum hlutum í félaginu.
Eik hefur keypt samtals 8.166.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,24% af útgefnum hlutum í félaginu og nemur heildarkaupverð þeirra 112.486.650 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar og tilkynningar um viðskipti eru í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik, sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum, og reglugerð framkvæmdastjórnar 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Lýður H. Gunnarsson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs á netfanginu lydur@eik.is