Bifogade filer
Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Investeringar |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Rekstur Festi í takt við áætlanir – hagnaður 1F 2026 nam 218 millj.kr.
Helstu niðurstöður 1. ársfjórðungs 2026
- Vörusala nam 40.061 millj. kr. sem er aukning um 6,0% milli ára.
- Framlegð af vöru- og þjónustusölu nam 9.747 millj. kr. sem er aukning um 5,8% á milli ára.
- Framlegðarstig nam 24,3% og lækkar um 0,1 p.p. frá 1F 2025 en 0,6 p.p. án áhrifa gengis, breytinga á heimsmarkaði eldsneytis og breytinga opinberra gjalda á eldsneyti um síðustu áramót.
- EBITDA nam 2.565 millj. kr. og hækkar um 3,0% milli ára.
- Hagnaður nam 218 millj. kr. og arðsemi eigin fjár 13,7%.
- Handbært fé frá rekstri var neikvætt um 32 millj. kr. en einskiptisáhrif í rekstrartengdum eignum og skuldum skýra mismun milli ára.
- Vaxtaberandi skuldir voru endurfjármagnaðar á fjórðungnum fyrir um 4,2 ma. kr. ásamt 297 millj. kr. sem greidd voru inná önnur lán. Þá voru keypt eigin bréf fyrir 563 millj. kr.
- Eigið fé nam 44.971 millj. kr. og er eiginfjárhlutfallið 38,7% í lok 1F 2026 samanborið við 41,2% í árslok 2025. Félagið úthlutaði arði fyrir 2.151 millj. kr í mars sem greitt var til hluthafa 9.apríl sl.
- EBITDA spá félagsins fyrir árið 2026 er óbreytt og nemur 16.500 – 17.000 millj. kr.
Ásta S. Fjeldsted, forstjóri:
„Rekstur félagsins gekk vel á ársfjórðungnum og var í takt við áætlanir stjórnenda. Heildartekjur jukust um 6,0% milli ára og jókst sala í flestum vöruflokkum í magni milli ára; fjöldi afgreiðslna jókst um 1,4%, fjöldi seldra vara jókst um 5,8% og fjöldi seldra eldsneytislítra um 18,5% mest í sölu til stórnotenda. Áfram er mikill vöxtur í fjölda afgreiðslna í gegnum stafræna miðla en þeim fjölgaði um 13,3% á milli ára.
Líkt og víðar í hagkerfinu hefur launakostnaður og verð á aðföngum hækkað, en markvissar aðgerðir hafa að mestu vegið upp á móti þeim áhrifum. Laun og starfsmannakostnaður hækka um 3,5% í heild, án áhrifa af breytingum í stöðugildum. Áhersla okkar er að viðhalda samkeppnishæfni og tryggja um leið heilbrigðan rekstur til lengri tíma.
Fjárfestingar í stafrænum lausnum og gagnadrifinni ákvarðanatöku skila áframhaldandi aukningu í skilvirkni. Notkun gervigreindar og sjálfvirknivæðingar í lykilþáttum rekstrarins hefur þegar haft jákvæð áhrif, þótt enn séu mörg tækifæri til frekari framþróunar.
Hagnaður fyrsta ársfjórðungs nam 218 millj.kr. sem er lækkun um 61 millj.kr. milli ára. Eiginfjárhlutfallið var 38,7% í lok fjórðungsins sem er lækkun um 3,5% frá lok árs 2025 en arður greiddur til hluthafa þann 9. apríl sl. nam 2,2 ma. kr. Lausafjárstaða félagsins er góð og efnahagsreikningur félagsins sterkur,“ segir Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi.
Helstu fréttir af starfseminni
- Krónan heldur áfram að bæta við sig viðskiptavinum en um leið endurbæta verslanir sínar. Krónan í Lindum Kópavogi opnar aftur í byrjun sumars og verður ein glæsilegasta verslun landsins.
- Lyfja tilkynnti um kaup á Borgar Apóteki í Borgartúni en kaupin eru háð samþykki Samkeppniseftirlitsins. Samhliða eru framkvæmdir hafnar við nýtt apótek Lyfju á Völlunum í Hafnarfirði við hlið Krónunnar.
- ELKO Snjallgreiðslur hafa fengið gríðarlega góðar viðtökur í vefverslun en stefnt er að innleiðingu þjónustunnar í verslanir í haust. ELKO mun síðan opna á næstu vikum nýja verslun í Smáralind, á besta stað við nýju mathöllina Garðinn, þar sem boðið verður upp á sérvalið vöruúrval og þjónustu.
- N1 er í sókn þó svo framlegð hafi lækkað á fjórðungnum og hefur afgreiðslufjöldi aukist um 16% á milli ára og fjöldi nýrra eldsneytisviðskiptavina tvöfaldast. N1 appið laðar að fleiri viðskiptavini en mars var metmánuður seldra lítra í gegnum appið. Dekkjaverkstæðin eru fullbókuð af bílum sem eru að skipta yfir á sumardekk – en vertíðin hófst töluvert síðar en í fyrra. Uppbygging á Akranesi, umbreyting á Blönduósi og fleiri verkefni í fullum gangi.
- Nýtt kælivöruhús Bakkans vöruhúss hóf starfsemi sína á fjórðungnum og mun sú starfsemi styðja enn betur við vöxt og bætt gæði ávaxta og grænmetis í Krónunni.
- Festi lauk sölu á nýjum verðtryggðum skuldabréfaflokki að nafnvirði 4,2 ma. króna á ávöxtunarkröfunni 3,95%. Um er að ræða fyrstu útgáfu skuldabréfa hjá félaginu en um er að ræða endurfjármögnun á hluta af skuldum félagsins.
„Horfur fyrir árið 2026 eru góðar, þrátt fyrir óvissu í þróun efnahagsmála, hækkandi verðbólguspár og viðvarandi spennu í Mið-Austurlöndum. Lokun Hormússunds hefur haft víðtæk áhrif á heimsmarkaðsverð olíu og annarra aðfanga sem byggja á jarðefnaeldsneyti. Áhrifin á ferðaþjónustu og aðrar innlendar atvinnugreinar eru enn óljós, en framundan eru sumarmánuðirnir sem jafnan eru umsvifamestir í rekstri samstæðunnar. Áfram verður leitað leiða til að sporna gegn hækkun vöruverðs – og þar með verðbólgu – með bættum rekstri og lægra einingarverði.
Áherslur okkar í ár eru áframhaldandi öflugur rekstur félaganna okkar og fjárfesting í framtíð þeirra. Við munum ávallt hafa að leiðarljósi að bæta daglegt líf og skapa verðmæti í sátt við samfélagið,“ segir Ásta S. Fjeldsted.