Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Investeringar |
Festi birtir uppgjör sitt fyrir 1. ársfjórðung 2025 eftir lokun markaða þriðjudaginn 29. apríl næstkomandi.
Afkomufundur með markaðsaðilum 30. apríl kl. 8:30.
Afkomufundur fyrir markaðsaðila verður haldinn miðvikudaginn 30. apríl 2025 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi. Á fundinum munu Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi, og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi, kynna afkomu samstæðunnar á fyrsta ársfjórðungi og svara spurningum.
Fundinum verður einnig streymt beint á vefsíðu félagsins þar sem skráning á fundinn fer jafnframt fram: https://www.festi.is/tenglar/uppgjor-1f-2025. Þátttakendur sem fylgjast með rafrænt geta spurt spurninga á meðan á fundi stendur með því að senda tölvupóst á netfangið fjarfestatengsl@festi.is. Spurningum verður svarað að kynningu lokinni.
Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Festi: https://www.festi.is/fjarhagsupplysingar.