Beskrivning
| Land | Island |
|---|---|
| Lista | Mid Cap Iceland |
| Sektor | Finans |
| Industri | Investeringar |
Vem äger bolaget?
All ägardata du vill ha finns i Holdings!
Á öðru nýtingartímabili samkvæmt kaupréttaráætlun fyrir starfsfólk Festi hf. (hér eftir „Festi“ eða félagið) og dótturfélaga, sem samþykkt var á aðalfundi 6. mars 2024, bárust tilkynningar um nýtingu kaupréttar sem taka til samtals 1.307.853 hluta í félaginu á genginu 180 og 213.283 hluta á genginu 290,1 á hvern hlut (kaupgengi aðlagað að teknu tilliti til arðgreiðslna frá gerð kaupréttarsamninga) eða fyrir heildarfjárhæð kr. 297.286.902.
Í kjölfar nýtingar kaupréttar samkvæmt kaupréttaráætluninni og í tengslum við uppgjörið afhendir félagið alls 1.521.136 hluti til starfsfólks samstæðunnar til efnda á skuldbindingum samkvæmt kaupréttarsamningum.
Festi á eftir afhendingu framangreindra hluta samtals 3.678.864 eigin hluti eða sem nemur 1,18% af útgefnu hlutafé.
Nánari upplýsingar veita Ásta S. Fjeldsted, forstjóri Festi – asta@festi.is og Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrasviðs Festi – mki@festi.is.