Fredag 25 April | 23:56:14 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2024-03-20 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2022-03-02 - Årsstämma
2022-02-04 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-28 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-22 - Årsstämma
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-03-23 - Årsstämma
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriInvesteringar
Festi är ett holdingbolag. Inom koncernen erbjuds ett brett utbud av konsultlösningar inom affärsutveckling. Specialistkompetens återfinns huvudsakligen inom finans och riskhantering, där kunderna består av små- och medelstora bolag runtom den isländska marknaden. Kunderna är verksamma inom ett flertal sektorer, från energi- och livsmedelsindustrin, till fastighetssektorn.
2024-12-05 17:07:06

Magnús Hafliðason hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri N1 og tekur samhliða því sæti í framkvæmdastjórn Festi snemma á nýju ári.

Magnús er þrautreyndur rekstrar- og markaðsmaður með yfir 25 ára reynslu bæði á Íslandi og í Skandinavíu. Hann hefur sl. þrjú ár gegnt starfi forstjóra Domino's á Íslandi. Áður var hann fram­kvæmda­stjóri Dom­in­o's í Dan­mörku 2006-2007, rekstr­ar- og markaðsstjóri Domino‘s á Íslandi 2011-2014, fram­kvæmda­stjóri Dom­in­o's í Nor­egi 2014-2017 og sér­fræðing­ur í rekstr­ar- og markaðsmá­l­um á er­lend­um mörkuðum Dom­in­o's Pizza Group á ár­un­um 2018-2019. Hann var framkvæmdastjóri Joe and the Juice á árunum 2019-2020 áður en hann tók við sem forstöðumaður markaðs- og samskiptasviðs Sýnar árið 2020-2021. Magnús er með Executive MBA gráðu frá Háskóla Íslands.

„Við erum gríðarlega spennt að fá Magnús Hafliðason til liðs við okkur og trúum því að hann sé rétti maðurinn til að leiða N1 áfram þar sem þekking hans og reynsla í rekstrar- og markaðsmálum ásamt góðri innsýn í tækni tengdri þjónustuupplifun viðskiptavina muni styðja við þá vegferð sem N1 er á. Magnús tekur við gríðarlega öflugu félagi sem er statt í miðjum orkuskiptum og klárt að sækja enn frekar fram. Við bjóðum hann hjartanlega velkominn og hlökkum til samstarfsins,“ segir Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi.

„Það er mér mikill heiður að taka við starfi framkvæmdastjóra N1, félags með langa og merka sögu sem nær aftur til ársins 1913. N1 hefur verið leiðandi afl á sínum mörkuðum og ég er afar spenntur fyrir þeim tækifærum sem felast í því að byggja á þeim trausta grunni og leiða félagið inn í nýja tíma. Fyrir höndum eru fjölmörg spennandi verkefni, og félagið er í einstakri stöðu til að styrkja sig enn frekar í takt við þær samfélagsbreytingar sem eru í gangi. Ég er fullur eftirvæntingar og hlakka til að takast á við verkefnið í samstarfi við þann hæfileikaríka hóp sem starfar hjá félaginu,“ segir Magnús Hafliðason.

Samhliða ráðningu Magnúsar tekur Reynir Leósson við stöðu aðstoðarframkvæmdastjóra N1. Reynir hefur gegnt starfi forstöðumanns fyrirtækjasviðs sl. þrjú ár og mun áfram sinna því en tekur jafnframt að sér víðtækari ábyrgð innan félagsins til að styðja við frekari sókn á breiðari grunni.

„Reynir er mjög öflugur stjórnandi sem hefur náð góðum árangri á undanförnum árum og styrkt stöðu okkar á fyrirtækjamarkaði. Hann mun reynast félaginu og viðskiptavinum vel í nýju hlutverki.“  segir Ásta Sigríður Fjeldsted, forstjóri Festi.