Festi hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - vika 45
Í 45. viku 2026 keypti Festi alls 60.000 eigin hluti fyrir 17.970.000 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð | |||||
| 45 | 6.11.2026 | 14:21:52 | 60.000 | 299,5 | 17.970.000 | |||||
| 60.000 | 17.970.000 | |||||||||
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin átti Festi 9.347.545 eigin hluti eða 2,99% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 60.000 eigin hluti fyrir 17.970.000 kr. og á í dag 9.407.545 eigin hluti sem samsvarar 3,01% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 5. nóvember 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.200.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,02% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. (mki@festi.is).