Festi hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun - vika 46
Í 46. viku 2026 keypti Festi alls 288.872 eigin hluti fyrir 88.693.960 kr. eins og hér segir:
| Vika | Dagsetning | Tímasetning viðskipta | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
| 46 | 9.11.2026 | 14:31:04 | 60.000 | 302,00 | 18.120.000 |
| 46 | 10.11.2026 | 13:11:36 | 22.872 | 305,00 | 6.975.960 |
| 46 | 11.11.2026 | 14:00:17 | 90.000 | 309,00 | 27.810.000 |
| 46 | 12.11.2026 | 10:56:50 | 56.000 | 308,00 | 17.248.000 |
| 46 | 13.11.2026 | 15:01:15 | 60.000 | 309,00 | 18.540.000 |
| 288.872 | 88.693.960 |
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar er í samræmi við lög um hlutafélög nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik nr. 596/2014, framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar 2016/1052, samanber lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021.
Fyrir kaupin átti Festi 9.407.545 eigin hluti eða 3,01% af hlutafé félagsins. Festi hefur nú keypt samtals 348.872 eigin hluti fyrir 106.663.960 kr. og á í dag 9.696.417 eigin hluti sem samsvarar 3,10% af hlutafé félagsins. Um er að ræða tilkynningu um kaup Festi á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun sem var tilkynnt um 5. nóvember 2026 í tilkynningu til Nasdaq Iceland. Áætlað er að kaupa að hámarki 3.200.000 eigin hluti í félaginu eða sem samsvarar 1,02% af útgefnu hlutafé, þó þannig að fjárhæð endurkaupanna verði aldrei meiri en 1.000 milljónir króna að kaupverði.
Nánari upplýsingar veitir Magnús Kr. Ingason, framkvæmdastjóri fjármála- og rekstrarsviðs Festi hf. (mki@festi.is).