Torsdag 15 Januari | 00:22:58 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2026-03-05 N/A Årsstämma
2026-02-05 N/A Bokslutskommuniké 2025
2025-10-30 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-07-29 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-04-29 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-03-05 - Årsstämma
2025-02-05 - Bokslutskommuniké 2024
2024-10-30 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-07-31 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-04-23 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-21 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK
2024-03-20 - Årsstämma
2024-02-07 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-07-27 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-03 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2022-03-02 - Årsstämma
2022-02-04 - Bokslutskommuniké 2021
2021-10-28 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-07-28 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-04-28 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-22 - Årsstämma
2021-02-24 - Bokslutskommuniké 2020
2020-03-23 - Årsstämma
2019-03-22 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 0.00 ISK
2019-03-21 - Årsstämma
2019-02-27 - Bokslutskommuniké 2018
2016-03-17 - X-dag ordinarie utdelning FESTI 3.00 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFinans
IndustriInvesteringar
Festi är ett holdingbolag. Inom koncernen erbjuds ett brett utbud av konsultlösningar riktade mot affärsutveckling. Specialistkompetens återfinns huvudsakligen inom finans och riskhantering, där kunderna består av små- och medelstora företag runtom den isländska marknaden. Kunderna är verksamma inom ett flertal sektorer, från energi- och livsmedelsindustrin, till fastighetssektorn.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2025-12-29 14:00:00

Tilnefningarnefnd Festi hf. auglýsir hér með eftir tilnefningum eða áhuga á framboði til stjórnar Festi vegna aðalfundar félagsins sem haldinn verður 5. mars 2026 samkvæmt fjárhagsdagatali félagsins.

Nefndin er ráðgefandi og er hlutverk hennar að undirbúa og gera tillögu um frambjóðendur við kjör stjórnar félagsins á aðalfundi. Skal að því stefnt að stjórnin sé á hverjum tíma þannig samsett að hún búi yfir fjölbreyttri þekkingu og reynslu sem nýtist félaginu við stefnumótun og eftirlit í því umhverfi sem félagið starfar í á hverjum tíma.

Festi er skráð félag með umfangsmikla starfsemi og gerir stjórnarstarf í félaginu kröfu um viðmikla þekkingu og reynslu stjórnarmanna. Samkvæmt starfsreglum tilnefningarnefndar skal nefndin við gerð tillögu um kosningu stjórnarmanna í Festi horfa til hæfni, reynslu og þekkingar, m.a. með tilliti til leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja og niðurstöðu árangursmats stjórnar. Við tillögugerð nefndarinnar verður litið til samsetningar stjórnar í heild meðal annars út frá nánar skilgreindum hæfniþáttum sem lúta að þekkingu og reynslu á sviðum stefnumótunar og rekstrar, eftirlits og stjórnarhátta sem og þeim mörkuðum sem samstæða Festi starfar á. Jafnframt verður litið til samskiptahæfni og orðspors frambjóðenda.

Stjórnarmenn þurfa enn fremur að fullnægja þeim skilyrðum sem fram koma í samþykktum félagsins og lögum um hlutafélög sbr. ákvæði 66. gr. hlutafélagalaga nr. 2/1995. Starfsreglur tilnefningarnefndar, samþykktir félagsins og önnur gögn eru aðgengileg á heimasíðu Festi.

Athygli er vakin á því að sérstök skilyrði eiga við um stjórnarmenn í Festi vegna sáttar félagsins við Samkeppniseftirlitið, dags. 30. júlí 2018. Geta áhugasamir um framboð kynnt sér skilyrðin á vefsíðu Samkeppniseftirlitsins þar sem þau eru aðgengileg án trúnaðarupplýsinga.

Þess er óskað að tilnefningum eða upplýsingum um áhuga á framboði sé skilað til tilnefningarnefndar á sérstöku eyðublaði, sem nálgast má á  www.festi.is/vidburdir/adalfundur-festi-2026,  ásamt ítarlegri ferilskrá fyrir 15. janúar 2026 á netfangið tilnefningarnefnd@festi.is.

Athugið að störf tilnefningarnefndar og skilafrestur umsókna til hennar takmarka ekki rétt frambjóðenda til að skila inn framboðum til stjórnar félagsins áður en almennur framboðsfrestur rennur út (tíu sólarhringir fyrir upphaf aðalfundar samkvæmt samþykktum félagsins).

Þeim hluthöfum sem vilja eiga fund með tilnefningarnefnd eða koma skilaboðum á framfæri við nefndina í aðdraganda aðalfundar 2026 er bent á að hafa samband við tilnefningarnefnd eigi síðar en 15. janúar nk. með tölvupósti á netfangið tilnefningarnefnd@festi.is.

Nálgast má gögnin á www.festi.is/vidburdir/adalfundur-festi-2026.