Bifogade filer
Flugfélagið PLAY flutti 86.893 farþega í febrúar 2025, samanborið við 106.042 farþega í febrúar í fyrra sem endurspeglar 13,8% mun á framboði á milli ára sem er bein afleiðing af ákvörðun PLAY að leigja eina af farþegaþotum sínum til GlobalX í Miami og aðlaga framboðið eftir árstíðarbundnum sveiflum.
Sætanýting PLAY í liðnum febrúar var 75,8%, samanborið við 81,0% í febrúar í fyrra. PLAY hefur lagt aukna áherslu á aukið framboð til sólarlandaáfangastaða í Suður-Evrópu, sem endurspeglast í sætanýtingu febrúar. Sólarlandaáfangastaðir gefa af sér betri afkomu en þar sem um er að ræða beint flug frá Íslandi þar sem tengifarþegar eru ekki fyrir hendi, kemur það jafnan niður á sætanýtingu.
Sólarlandaáherslan hefur jákvæð áhrif á einingatekjur félagsins sem hafa aukist á milli ára, Febrúar var sjötti mánuðurinn í röð þar sem vöxtur hefur orðið á einingatekjum á milli ára og líkt og áður hefur verið greint frá eru horfur á að sú þróun haldi áfram árið 2025.
Stundvísi PLAY í febrúar var 81,0%, samanborið við 90,1% í febrúar í fyrra.
Sólríkt sumar framundan
Með aukinni áherslu á sólarlönd stendur Íslendingum nú til boða mikið úrval af áfangastöðum fyrir sumarfríið. 15 sólarlandaáfangastaðir eru í leiðakerfi PLAY, þar á meðal vinsælir staðir á borð við Alicante og Tenerife en líka nýliðar á borð við Antalya í Tyrklandi, Pula í Króatíu og Valencia á Spáni.
PLAY hefur greint frá því að samkomulag sé í höfn um leigu þriggja véla frá og með næstkomandi vori til ársloka 2027. Samkomulagið mun skila PLAY bættri arðsemi í samræmi við áður útgefið efni og umfram fyrri ár. Þessir leigusamningar mun tryggja mikinn fyrirsjáanleika í rekstri PLAY.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri PLAY:
„Einingatekjur okkar halda áfram að þróast í jákvæða átt og hafa nú aukist á milli ára sex mánuði í röð, sem er bein afleiðing af ákvörðun okkar að leggja aukna áherslu á sólarlandaáfangastaði. Þetta er staðfesting á því að ákvörðun okkar um að breyta viðskiptalíkani félagsins hefur gefið góða raun og við erum viss um að þessi jákvæði viðsnúningur sem fylgir breytingunum haldi áfram.
Við mun halda ótrauð áfram á þessari braut þar sem áherslan er á vinsæla áfangastaði sem gefa vel af sér og um leið eru sótt ný verkefni fyrir flotann. Samkomulag er í höfn um leigu þriggja véla frá og með næstkomandi vori til ársloka 2027. Verkefnið mun skila PLAY arðsemi í samræmi við það sem félagið hefur áður gefið til kynna og færir félaginu afar stöðugan og jákvæðan rekstur af þessum hluta starfseminnar.“