Hagar hf.: Fjárfestakynning 1F 2026/27
2026-07-01 10:15:00
Meðfylgjandi er fjárfestakynning Haga á uppgjöri 1. ársfjórðungs 2026/27 sem haldin verður rafrænt fyrir markaðsaðila og hluthafa kl. 8:30 í dag, miðvikudaginn 1. júlí 2026. Á fundinum munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.
Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.
Fundinum verður streymt og er skráning hér: https://www.hagar.is/skraning