05:39:42 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2024-05-30 Årsstämma 2024
2024-04-23 Bokslutskommuniké 2023
2024-01-11 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-10-18 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-28 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-06-01 Årsstämma 2023
2023-04-27 Bokslutskommuniké 2022
2023-01-11 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-19 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-06-02 Årsstämma 2022
2022-05-10 Bokslutskommuniké 2021
2022-01-12 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-10-19 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-25 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-06-10 Årsstämma 2021
2021-05-19 Bokslutskommuniké 2020
2021-01-14 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-10-29 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-09 Årsstämma 2020
2020-05-29 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-18 Bokslutskommuniké 2019
2020-01-20 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-10-29 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-28 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-06-07 Årsstämma 2019
2019-05-16 Bokslutskommuniké 2018
2019-01-30 Kvartalsrapport 2018-Q3
2016-06-06 Ordinarie utdelning HAGA 1.70 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDetaljhandel
Hagar är en koncern med verksamhet inom detalj- och livsmedelsbranschen. Koncernen äger, driver och utvecklar flertalet dagligvaruhandelskedjor runtom på den isländska marknaden, samt olika modekedjor och lagerlokaler. Verksamhet utgår ifrån koncernens dotterbolag, som antingen drivs självständigt eller via franschisesamarbete på internationell nivå. Exempel på bolag som återfinns inom koncernen inkluderar Hagkaup, Bonus samt Hýsing.
2021-08-20 17:35:20

Jóhanna Þ. Jónsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Banana ehf., dótturfélags Haga hf., en líkt og fram kom í tilkynningu þann 2. júlí sl. hefur Kjartan Már Friðsteinsson beðist lausnar úr starfi eftir langan og farsælan feril. Jóhanna hefur víðtæka reynslu af stjórnun og stefnumótun, einkum á sviði aðfangastýringar, rekstri vöruhúsa og innkaupa. Hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri aðfangakeðju Innnes ehf. sem er ein af stærstu matvöruheildverslunum landsins.  Áður vann hún hjá Distica, Bláa Lóninu og Össuri. Jóhanna er með B.Sc. gráðu frá Tækniháskóla Íslands og hefur lokið MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík. Jóhanna mun hefja störf á næstu vikum.


Finnur Oddsson, forstjóri Haga:

„Það er sérlega ánægjulegt og fengur fyrir Banana og Haga að fá Jóhönnu til liðs við afar sterkan hóp sem þar starfar fyrir.  Jóhanna býr að víðtækri reynslu á sviðum sem skipta sköpum í okkar rekstri, sérstaklega tengt stjórnun aðfangakeðju, gæðamálum og uppbyggingu framúrskarandi þjónustuframboðs. Þá hefur Jóhanna mikla reynslu í bættri nýtingu í aðfangastýringu með tæknilausnum og mun sú reynsla nýtast félaginu vel í komandi verkefnum. Eftirspurn eftir ferskvöru á borð við grænmeti og ávexti hefur aukist verulega undanfarin ár og svo verður áfram.  Við sjáum mikil tækifæri í að efla enn frekar þjónustuframboð Banana en með því höldum við áfram að uppfylla þarfir viðskiptavina, sem og að stuðla að sjálfbærni og betri lýðheilsu.  Við bjóðum Jóhönnu sérstaklega velkomna í teymið."


Jóhanna Þ. Jónsdóttir, nýr framkvæmdastjóri Banana:

„Ég er full tilhlökkunar að verða hluti af því öfluga teymi sem starfar hjá Banönum. Bananar eru glæsilegt fyrirtæki sem með sérlega góðu framboði af ávöxtum og grænmeti af bestu gæðum gegnir mikilvægu hlutverki í lýðheilsu landsmanna.  Áhugi neytenda og almenn neysla á grænmeti og ávöxtum hefur verið að aukast undanfarin ár og mun sú þróun að öllum líkindum halda áfram. Ég er því afar spennt fyrir verkefninu og þakklát fyrir traustið sem mér er sýnt til þess að leiða fyrirtækið inn í framtíðina, en byggja um leið á þeim trausta grunni sem til staðar er. Ég hlakka mikið til þess að hefja störf á næstu vikum."


Bananar ehf. eru stærsta innflutnings- og dreifingarfyrirtæki landsins í ávöxtum og grænmeti og þjóna stórum og kröfuhörðum hópi viðskiptavina, meðal annars verslunum, veitingahúsum, sjúkrahúsum, skólum og mötuneytum.  Bananar eru dótturfélaga Haga hf.


Nánari upplýsingar veitir Finnur Oddsson, forstjóri Haga (fo@hagar.is).