Hagar hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun (vika 39) og lok endurkaupaáætlunar
Í viku 39 keyptu Hagar hf. 117.447 eigin hluti að kaupverði kr. 13.976.193 eins og hér segir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð (kr.) | Eigin hlutir eftir viðskipti |
| 21.9.2026 | 10:26 | 117.447 | 119,000 | 13.976.193 | 25.439.390 |
| 117.447 | 119,000 | 13.976.193 | 25.439.390 |
Er hér um að ræða tilkynningu um kaup félagsins á eigin hlutum í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem hrint var í framkvæmd þann 21. ágúst 2026, sbr. tilkynningu til Kauphallar dags. 20. ágúst 2026.
Endurkaupaáætlun þessari, sem tilkynnt var um til Kauphallar þann 20. ágúst 2026, er nú lokið. Samkvæmt framangreindri tilkynningu var áætlað að kaupa allt að 89.338.017 hluti, þó þannig að heildarfjárhæð endurkaupanna yrði aldrei meiri en samtals kr. 500.000.000. Hagar keyptu samtals 4.134.521 hluti, sem nemur 0,37% af útgefnum hlutum, og nam heildarkaupverð eigin hluta samtals kr. 499.999.999. Hagar eiga nú samtals 25.439.390 hluti eða 2,30% af heildarhlutafé félagsins sem er 1.106.428.863 hlutir.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar var í samræmi við viðeigandi lög og reglugerðir, þ.m.t. lög nr. 2/1995 um hlutafélög, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014 um markaðssvik (MAR) og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) nr. 2016/1052 sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir, sem hafa lagagildi hér á landi sbr. lög nr. 60/2021 um aðgerðir gegn markaðssvikum.
Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga hf., í síma 530-5500 eða á geg@hagar.is