Söndag 14 September | 11:49:37 Europe / Stockholm
2025-05-14 17:02:26

Meðfylgjandi má finna staðfestingu KPMG ehf. á skýrslum Haga hf. um fjárhagslegar kvaðir í tengslum við skuldabréfaútgáfu HAGA 021029, HAGA 120926 1 og HAGA161127. Útreikningar og staðfesting fjárhagslegra skilyrða skal fara fram í kjölfar birtingar hálfsárs- og ársreiknings félagsins. Ársuppgjör Haga var birt þann 30. apríl sl.

Yfirferð staðfestingaraðila á fjárhagslegum kvöðum samræmist mati Haga hf. og voru skýrslur félagsins um fjárhagslegar kvaðir því staðfestar.

Nánari upplýsingar veitir Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Haga, geg@hagar.is