05:15:38 Europe / Stockholm

Kurs & Likviditet

Kursutveckling och likviditet under dagen för detta pressmeddelande

Kalender

2025-05-21 Årsstämma
2025-04-15 Bokslutskommuniké 2024
2025-01-09 Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-10-17 Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-06-28 Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-05-30 Årsstämma
2024-04-23 Bokslutskommuniké 2023
2024-01-11 Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-10-18 Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-28 Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-06-01 Årsstämma
2023-04-27 Bokslutskommuniké 2022
2023-01-11 Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-19 Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-06-02 Årsstämma
2022-05-10 Bokslutskommuniké 2021
2022-01-12 Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-10-19 Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-25 Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-06-10 Årsstämma
2021-05-19 Bokslutskommuniké 2020
2021-01-14 Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-10-29 Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-09 Årsstämma
2020-05-29 Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-18 Bokslutskommuniké 2019
2020-01-20 Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-10-29 Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-28 Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-06-07 Årsstämma
2019-05-16 Bokslutskommuniké 2018
2019-01-30 Kvartalsrapport 2018-Q3
2016-06-06 X-dag ordinarie utdelning HAGA 1.70 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDetaljhandel
Hagar är en koncern med verksamhet inom detalj- och livsmedelsbranschen. Koncernen äger, driver och utvecklar flertalet dagligvaruhandelskedjor runtom på den isländska marknaden, samt olika modekedjor och lagerlokaler. Verksamhet utgår ifrån koncernens dotterbolag, som antingen drivs självständigt eller via franschisesamarbete på internationell nivå. Exempel på bolag som återfinns inom koncernen inkluderar Hagkaup, Bonus samt Hýsing.
2024-10-17 17:54:19

Ágætur gangur í rekstri og söluferli á Olíudreifingu hafið

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2024/25 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 17. október 2024. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2024. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.

 

Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 46.579 m.kr. (2,8% vöxtur frá 2F 2023/24). Vörusala 6M nam 90.646 m.kr. (4,4% vöxtur frá 6M 2023/24). [2F 2023/24: 45.309 m.kr., 6M 2023/24: 86.799 m.kr.]
  • Framlegð 2F nam 10.174 m.kr. (21,8%) og 19.711 m.kr. (21,7%) fyrir 6M. [2F 2023/24: 9.903 m.kr. (21,9%), 6M 2023/24: 17.975 m.kr. (20,7%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 4.014 m.kr. eða 8,6% af veltu. EBITDA 6M nam 7.228 m.kr. eða 8,0% af veltu. [2F 2023/24: 4.472 m.kr. (9,9%), 6M 2023/24: 6.993 m.kr. (8,1%)]
  • Hagnaður 2F nam 1.723 m.kr. eða 3,7% af veltu. Hagnaður 6M nam 2.573 m.kr. eða 2,8% af veltu. [2F 2023/24: 2.084 m.kr. (4,6%), 6M 2023/24: 2.737 m.kr. (3,2%)]
  • Grunnhagnaður á hlut 2F var 1,59 kr. og 2,37 kr. fyrir 6M. [2F 2023/24: 1,88 kr., 6M 2023/24: 2,47 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 2F var 1,56 kr. og 2,33 kr. fyrir 6M. [2F 2023/24: 1,84 kr., 6M 2023/24: 2,42 kr.]
  • Eigið fé nam 28.282 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 34,9%. [Árslok 2023/24: 28.188 m.kr. og 36,5%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2024/25 er óbreytt og gerir ráð fyrir að EBITDA verði 13.800-14.300 m.kr.

 

Helstu fréttir af starfsemi

  • Rekstur á öðrum ársfjórðungi gekk ágætlega en söluaukning nam 2,8% milli ára.
  • Á 2F fækkar seldum stykkjum í dagvöruverslunum lítillega milli ára, eða um tæplega 1,0% en heimsóknum viðskiptavina fjölgar um 1,6% - aukning í Bónus en samdráttur hjá Hagkaup.
  • Seldum eldsneytislítrum fækkaði um 4,2% á fjórðungnum - stór einskiptisverkefni á samanburðartímabili skekkja samanburð.
  • Framlegð í krónum talið jókst um 2,7% milli ára og framlegðarhlutfallið stóð nánast í stað í 21,8% á fjórðungnum.
  • Undirbúningur að opnun erlendrar vefverslunar með áfengi stóð yfir á tímabilinu og opnaði Hagar Wine, dótturfélag Haga, vefverslun með áfengi í samstarfi við Hagkaup í byrjun september.
  • Bónus og KKÍ gerðu með sér samstarfssamning þar sem Bónus er nú einn af aðal samstarfsaðilum KKÍ og munu úrvalsdeildir karla og kvenna bera nafn Bónus.
  • Í samræmi við samþykkt hluthafafundar þann 30. ágúst sl. var þann 31. ágúst úthlutað kaupréttum fyrir samtals 12,9 millj. hlutum í félaginu, eða sem samsvarar 1,17% af hlutafé. Þar af var 11,0 millj. úthlutað til framkvæmdastjórnar.
  • Eftir lok ársfjórðungs, þann 26. september sl., var tilkynnt um að Hagar og meðeigendur hefðu ákveðið að hefja formlegt söluferli á eignarhlutum félaganna í Olíudreifingu

 

Finnur Oddsson, forstjóri:

Rekstur Haga í sumar, á öðrum ársfjórðungi rekstrarársins 2024/25, gekk ágætlega og samkvæmt áætlunum. Á fjórðungnum jókst vörusala um 2,8% miðað við árið á undan og nam 46.579 m.kr. Framlegð jókst að sama skapi um 2,7% í krónum talið en framlegðarhlutfall stóð í stað og var 21,8%. Þrátt fyrir að rekstur hafi gengið með ágætum, þá dróst afkoma á fjórðungnum heldur saman miðað við árið á undan, en EBITDA nam 4.014 m.kr. og hagnaður 1.723 m.kr. Þess ber að geta að afkoma á sama fjórðungi í fyrra var óvenju sterk í sögulegu samhengi.

Afkoma stærstu eininga sem falla undir verslanir og vöruhús styrktist á milli fjórðunga en afkoma starfsþáttar Olís dróst hins vegar nokkuð saman. Skýringin á samdrætti í afkomu Haga miðað við fyrra ár liggur því annars vegar í breytingum hjá Olís og hins vegar í hækkun fjármagnsgjalda. Hjá Olís er nauðsynlegt að horfa til samanburðar við sama fjórðung í fyrra, þegar selt magn og afkoma voru óvenju sterk, m.a. vegna hagfelldra hreyfinga í heimsmarkaðsverði olíu og stórra einskiptisverkefna. Tekjur Olís á fjórðungnum voru 14,7 ma. kr. og var eldsneytissala í lítrum á áætlun, bæði á smásölumarkaði og til stórnotenda. Ágætt ferðamannasumar, nýjar rafhleðslustöðvar í samstarfi við Ísorku og vel heppnuð samvinna með Wolt og póstafhendingarþjónustum skilaði sér í aukinni þurrvöru- og veitingasölu á þjónustustöðvum Olís. Heilt yfir hefur undirliggjandi rekstur Olís haldið áfram að styrkjast og enn er unnið að því að efla þjónustuframboð á stöðvum. Því tengt mun fyrsta bílaþvottastöð félagsins opna í desember undir merkinu Glans. Þá er formlegt söluferli á eignarhlutum Olís og meðeigenda í ODR hafið.

Tekjur í rekstri verslana og vöruhúsa jukust um tæp 5% og afkoma styrktist á milli fjórðunga. Heimsóknum viðskiptavina fjölgar sem fyrr hjá Bónus en hjá Hagkaup var samdráttur í bæði seldum stykkjum og heimsóknum. Stórbruni í Kringlunni í byrjun sumars, lokanir verslana og fækkun gesta, höfðu neikvæð áhrif á matvöruverslanir Haga í verslunarmiðstöðinni, en þar rekur félagið bæði Bónus verslun og stóra Hagkaups verslun. Einnig má gera ráð fyrir að háir stýrivextir og hækkandi greiðslubyrði fasteignalána séu farin að hafa áhrif í dagvöruverslun, sem sést m.a. á því að þó viðskiptavinum haldi áfram að fjölga og fjöldinn sé í sögulegu hámarki, þá fækkar stykkjum örlítið sem rata í hverja verslunarkörfu. Þeim fjölgar áfram sem nýta sér Gripið & Greitt þjónustu Bónus, enda fljótlegasta leiðin til að versla og léttir viðskiptavinum lífið. Þjónustan er nú í boði í sjö Bónusverslunum og fjórar bætast fljótlega við. Hagkaup hefur lagt sérstaka áherslu á að bæta þjónustuframboð á undanförnum misserum, m.a. með nýjungum í vöruframboði verslana og auknu úrvali í netverslun. Viðskiptavinir hafa tekið þessu aukna úrvali opnum örmum, sem ásamt átaki í hagræðingu skilar nú sterkari rekstri á milli fjórðunga. Netverslun Hagar Wine með áfengi opnaði í september og hefur verið vel tekið af viðskiptavinum frá fyrsta degi. Aukin eftirspurn ánægðra viðskiptavina og vélvæðing framleiðsluferla hjá Eldum rétt heldur áfram að skila sér í bættri afkomu og skilvirkari rekstri, m.a. vegna minni umbúðanotkunar. Starfsemi annarra eininga, þ.e. Aðfanga, Banana, Stórkaups og Zara var í takti við áætlanir.

Á síðustu mánuðum og misserum hefur kauphegðun viðskiptavina þegar kemur að dagvöru breyst nokkuð, m.a. hliðrast yfir í ódýrari valkosti og færst framar í mánuði. Hjá verslunum Haga, einkum Bónus, hefur sérstök áhersla hefur verið lögð á að hjálpa viðskiptavinum að versla ódýrt, m.a. með því að bjóða hagkvæmari staðkvæmdarvöru við dýrari vörumerki, auðvelda innkaup í réttu magni, fjölga tilboðum, o.fl. Í sama tilgangi hefur aðhald smásala og gott samstarf við helstu birgja stuðlað að lækkandi matarverðbólgu, sem á eftir að koma heimilum vel, samhliða vonandi áfram lækkandi vöxtum.

Heilt yfir erum við sátt með starfsemi Haga á fjórðungnum og það er ánægjulegt að afkoma helstu eininga á dagvöruhliðinni heldur áfram að styrkjast þrátt fyrir breytta kauphegðun viðskiptavina. Staða og horfur í rekstri Haga eru góðar, en rekstrareiningar félagsins standa sterkt, fjárhagsleg staða er góð, og mörg tækifæri til vaxtar á nýjum sviðum. Sem fyrr hefur félagið á að skipa frábærum hópi starfsfólks sem hefur hag neytenda að leiðarljósi, m.a. með því að leita stöðugt leiða til að auka hagkvæmni í verslun og gera hana þægilegri og skemmtilegri. EBITDA spá stjórnenda fyrir árið er óbreytt, 13,8 – 14,3 ma.kr.

 

Rafrænn kynningarfundur föstudaginn 18. október 2024

Rafrænn kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn föstudaginn 18. október kl. 08:30, þar sem Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, munu kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Tekið verður við spurningum sem tengjast uppgjörinu á meðan á útsendingu stendur á netfangið fjarfestakynning@hagar.is og verður þeim svarað eins og kostur er í lok fundar.

Fundinum verður streymt og er skráning á fundinn hér: https://www.hagar.is/skraning

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

 

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.