Torsdag 15 Oktober | 23:17:58 Europe / Stockholm
Est. tid*
2027-04-29 N/A Bokslutskommuniké 2026
2027-01-14 10:15 Kvartalsrapport 2026-Q3
2026-10-15 10:15 Kvartalsrapport 2026-Q2
2026-06-30 - Kvartalsrapport 2026-Q1
2026-05-22 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 3.03 ISK
2026-05-21 - Årsstämma
2026-04-21 - Bokslutskommuniké 2025
2026-01-14 - Kvartalsrapport 2025-Q3
2025-10-16 - Kvartalsrapport 2025-Q2
2025-06-26 - Kvartalsrapport 2025-Q1
2025-05-28 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.28 ISK
2025-05-27 - Årsstämma
2025-04-15 - Bokslutskommuniké 2024
2025-01-09 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-10-17 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-06-28 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-05-31 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.33 ISK
2024-05-30 - Årsstämma
2024-04-23 - Bokslutskommuniké 2023
2024-01-11 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-10-18 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-06-28 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-06-02 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.24 ISK
2023-06-01 - Årsstämma
2023-04-27 - Bokslutskommuniké 2022
2023-01-11 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-10-19 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-06-30 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-06-02 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 2.00 ISK
2022-06-02 - Årsstämma
2022-05-10 - Bokslutskommuniké 2021
2022-01-12 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-10-19 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-06-25 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-06-10 - Årsstämma
2021-05-19 - Bokslutskommuniké 2020
2021-01-14 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-10-29 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-06-09 - Årsstämma
2020-05-29 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-05-18 - Bokslutskommuniké 2019
2020-01-20 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-10-29 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-06-28 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-06-07 - Årsstämma
2019-05-16 - Bokslutskommuniké 2018
2019-01-30 - Kvartalsrapport 2018-Q3
2016-06-06 - X-dag ordinarie utdelning HAGA 1.70 ISK
LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorHandel & varor
IndustriDetaljhandel
Hagar är en koncern med verksamhet inom detalj- och livsmedelsbranschen. Koncernen äger, driver och utvecklar flertalet dagligvaruhandelskedjor runtom på den isländska marknaden, samt olika modekedjor och lagerlokaler. Verksamhet utgår ifrån koncernens dotterbolag, som antingen drivs självständigt eller via franschisesamarbete på internationell nivå. Exempel på bolag som återfinns inom koncernen är Hagkaup, Bonus samt Hýsing.

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

Hagar hf: Uppgjör Haga á 2. ársfjórðungi 2026/27

2026-10-15 18:13:51

Sterkur rekstur og hækkuð afkomuspá - verðlækkanir til viðskiptavina

Árshlutareikningur Haga hf. fyrir annan ársfjórðung 2026/27 var samþykktur af stjórn og forstjóra félagsins á stjórnarfundi þann 15. október 2026. Reikningurinn er fyrir tímabilið 1. mars til 31. ágúst 2026. Árshlutareikningurinn hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess og er hann gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla (IFRS). Reikningurinn hefur verið kannaður af endurskoðendum félagsins, PricewaterhouseCoopers ehf.


Helstu lykiltölur

  • Vörusala 2F nam 54.683 m.kr. (5,5% vöxtur frá 2F 2025/26). Vörusala 6M nam 105.468 m.kr. (5,5% vöxtur frá 6M 2025/26). [2F 2025/26: 51.817 m.kr., 6M 2025/26: 99.932 m.kr.]
  • Framlegð 2F nam 13.514 m.kr. (24,7%) og 26.795 m.kr. (25,4%) fyrir 6M. [2F 2025/26: 12.874 m.kr. (24,8%), 6M 2025/26: 24.493 m.kr. (24,5%)]
  • Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta (EBITDA) 2F nam 5.666 m.kr. eða 10,4% af veltu. EBITDA 6M nam 10.802 m.kr. eða 10,2% af veltu. [2F 2025/26: 5.485 m.kr. (10,6%), 6M 2025/26: 9.531 m.kr. (9,5%)]
  • Hagnaður 2F nam 2.290 m.kr. eða 4,2% af veltu. Hagnaður 6M nam 4.207 m.kr. eða 4,0% af veltu. [2F 2025/26: 2.556 m.kr. (4,9%), 6M 2025/26: 3.721 m.kr. (3,7%)]
  • Heildarafkoma 2F nam 2.122 m.kr. og 4.133 m.kr. fyrir 6M. [2F 2025/26: 2.452 m.kr., 6M 2025/26: 3.641 m.kr.]
  • Grunnhagnaður á hlut 2F var 2,11 kr. og 3,88 kr. fyrir 6M. [2F 2025/26: 2,33 kr., 6M 2025/26: 3,39 kr.]. Þynntur hagnaður á hlut 2F var 2,09 kr. og 3,85 kr. fyrir 6M. [2F 2025/26: 2,32 kr., 6M 2025/26: 3,37 kr.]
  • Eigið fé nam 42.926 m.kr. í lok tímabils og eiginfjárhlutfall 36,4%. [Árslok 2025/26: 42.779 m.kr. og 37,1%]
  • Afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið 2026/27 er hækkuð samhliða uppgjörinu um 800 m.kr. og gerir ráð fyrir að EBITDA verði á bilinu 19.600-20.100 m.kr.


Helstu fréttir af starfsemi

  • Annar ársfjórðungur var umfram væntingar og gekk vel í öllum starfsþáttum - afkomuspá stjórnenda hækkuð um 800 m.kr.
  • Jákvæð áhrif á afkomu Olís á 1F, vegna viðskipta við stórnotendur og hækkandi heimsmarkaðsverðs olíu, gengu að hluta til baka á 2F en þó minna en gert var ráð fyrir
  • Heimsóknum viðskiptavina í dagvöru­verslanir (á Íslandi) fjölgaði um 3,2% og seldum stykkjum um 1,3% - smávægilegur samdráttur hjá Hagkaup en góður vöxtur hjá Bónus þrátt fyrir tímabundna lokun á Egilsstöðum
  • Seldum eldsneytislítrum fækkaði milli ára um 11,1% á 2F, vegna minni sölu til stórnotenda, einkum á flugvélaeldsneyti - sala á smásölusviði jókst á milli ára
  • Rekstur gengur vel hjá SMS í Færeyjum þar sem viðskiptavinum fjölgar um 2,8% á 2F - góð veltuaukning og sterkari afkoma
  • Um 650 nýjar vörur frá Salling hafa bæst í hillur Bónus og Hagkaups á árinu – vöruverð að meðaltali um 15% lægra en á sambærilegum vörum sem fyrir voru
  • Sterkur afkomuvöxtur í verslunum og vöruhúsum á Íslandi - EBITDA jókst um 17,1% á 2F og um 16,0% á fyrri árshelmingi
  • Í september tilkynntu Hagar að Bónus og Hagkaup hafi lækkað verð á hátt í 1.000 vörum um 2% og gildir lækkunin til áramóta – mikilvægt framlag félagsins í baráttunni gegn verðbólgu í matvöru
  • Tvær endurkaupaáætlanir settar í framkvæmd á fjórðungnum, heildar­­kaup námu 1.000 m.kr. – sterkur rekstur skapar svigrúm til frekari endurkaupa


Finnur Oddsson, forstjóri:

Rekstur Haga gekk vel á sumarmánuðum og niðurstaða fyrri helmings rekstrarársins 2026/27 er umfram áætlanir stjórnenda. Vörusala samstæðunnar á öðrum ársfjórðungi nam 54,7 ma. kr. og jókst um 5,5% frá fyrra ári. EBITDA nam 5,7 ma. kr. og hagnaður tímabilsins 2,3 ma. kr. Á fyrstu sex mánuðum ársins hefur vörusala aukist um 5,5% og EBITDA um 13,3%, í 10,8 ma. kr. Starfsemi gekk vel á öllum sviðum samstæðunnar, bæði á Íslandi og í Færeyjum, þótt áhrif alþjóðlegra átaka og óvenjulegra aðstæðna á olíumörkuðum liti enn uppgjörið. Afkoma fyrri árshelmings er umfram væntingar og því er afkomuspá stjórnenda fyrir rekstrarárið hækkuð um 800 m.kr., í 19.600-20.100 m.kr.

Starfsemi verslana og vöruhúsa á Íslandi gekk vel á fjórðungnum, en tekjur jukust um 5,8% og námu um 36,4 ma. kr. EBITDA starfsþáttarins styrktist um 17,1% milli ára. Heimsóknum viðskiptavina í dagvöruverslanir fjölgaði um 3,2% og seldum stykkjum um 1,3%. Rekstur Bónus var áfram sterkur, með aukinni sölu, fleiri viðskiptavinum og fjölgun seldra stykkja. Sérstaklega ánægjulegt er að sjá aukna sölu á ávöxtum og grænmeti, sem endurspeglar áherslu á aukið úrval, gæði og hagstætt verð. Viðskiptavinir hafa jafnframt tekið vel á móti endurbótum á verslunum, meðal annars á Selfossi. Hjá Hagkaup var sem fyrr lögð áhersla á fjölbreytt vöruúrval, nýjungar og aukna þjónustu. Samhliða hafa aðgerðir til að draga úr rýrnun og öðrum kostnaði skilað varanlegum árangri í rekstri og bættri afkomu.

Innkaupasamstarf Haga við Salling Group er farið að skila verulegum ávinningi fyrir viðskiptavini. Um 650 nýjar vörur hafa bæst í hillur Bónus og Hagkaups á árinu, að meðaltali á ríflega 15% lægra verði en sambærilegar vörur sem áður voru í boði. Með hagkvæmari innkaupum tekst okkur þannig bæði að lækka verð til viðskiptavina og styrkja framlegð og afkomu verslana. Jafnframt hefur samstarfið aukið verðaðhald á dagvörumarkaði almennt og er að okkar mati meðal þess sem hefur stuðlað að hagfelldri þróun matvöruverðs undanfarna mánuði. Samkvæmt vísitölumælingum hefur matvöruverð á Íslandi hækkað um innan við 1% á síðustu sex mánuðum, langt undir almennri verðlagsþróun. Í september tókum við enn frekari skref þegar Bónus og Hagkaup lækkuðu verð á stórum hluta eigin innflutnings Haga, um 1.000 vörur um ríflega 2%, með fyrirheiti um að hækka ekki verð þeirra fram að áramótum. Frekari verðlækkanir eru hins vegar mögulegar í samræmi við verðlækkanir frá birgjum.

Rekstur Aðfanga og Banana var í samræmi við góðan gang í dagvöruverslun. Stórkaup heldur áfram að sækja fram og skilar jákvæðri rekstrarafkomu eftir öflugan uppbyggingarfasa.  Tekjuvöxtur er kröftugur, einkum í sölu á matvöru sem jókst um u.þ.b. 60%. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi arðbærum vexti félagsins sem verður vaxtarbroddur á næstu misserum. Starfsemi annarra eininga samstæðunnar, meðal annars Eldum rétt og Zara, gekk sömuleiðis vel.

Rekstur Olís gekk vel á fjórðungnum, betur en áætlanir gerðu ráð fyrir. Eins og greint var frá við uppgjör fyrsta ársfjórðungs hafði hröð hækkun heimsmarkaðsverðs á olíu óvenjuleg, jákvæð áhrif á afkomu viðskipta við stórnotendur. Þessi áhrif gengu að hluta til baka á öðrum fjórðungi, en þó minna en ráð var fyrir gert. Tekjur Olís jukust um 3,3% á fjórðungnum þrátt fyrir niðurfellingu olíugjalds um áramót, sem hefur áhrif til lækkunar á bókfærðar tekjur, en veruleg hækkun heimsmarkaðsverðs olíu milli ára vegur á móti. Seldum eldsneytislítrum fækkaði um 11,1%, m.a. vegna minni sölu flugvélaeldsneytis í tengslum við heræfingar, en sú sala hefur takmarkað vægi í framlegð. Á sama tíma var nokkur aukning í sölu eldsneytis á smásölumarkaði.  Áfram var góður gangur í sölu á vörum og þjónustu annarri en eldsneyti, en framlag slíkra tekna til afkomu Olís hefur aukist mikið á síðustu misserum og hleypur aukningin á hundruðum milljóna á ársgrunni. Nýjungar í þjónustu, meðal annars samstarf við Kaffitár, þróun á framboði Grill 66 og bílaþvottur, styðja við áframhaldandi vöxt og sterkari afkomu.

Starfsemi SMS í Færeyjum gekk vel á fjórðungnum, en tekjur jukust um 8,7% og EBITDA styrktist um 13% milli ára. Heimsóknum viðskiptavina fjölgaði um 2,8% og afkoma var umfram áætlanir. Unnið var að endurbótum á nokkrum verslunum Bónus, meðal annars í Klaksvík og Þórshöfn, sem höfðu tímabundin áhrif á sölu en munu bæta aðstöðu og þjónustu til framtíðar.

Áfram er góður gangur í þróun nýrra þjónustuþátta innan Haga. Vildarfélögum í Takk heldur áfram að fjölga og nýjar útfærslur skapa fleiri tækifæri fyrir viðskiptavini til að njóta betri kjara og safna Takk krónum. Uppbygging innviða Haga miðla gengur sömuleiðis vel, skjávæðing verslana er langt komin miðað við sett markmið og viðskiptavinir Haga miðla hafa tekið nýju þjónustu- og vöruframboði vel. Þessi verkefni byggja á sterkum innviðum samstæðunnar og skapa forsendur fyrir bættri þjónustu og nýjum tekjustraumum.

Þrátt fyrir góða niðurstöðu fyrri árshelmings er áfram óvissa í rekstrarumhverfi Haga. Stríðsátök og spenna á alþjóðamörkuðum hafa valdið miklum sveiflum í heimsmarkaðsverði olíu, sem hefur haldist hátt, og vaxandi áhyggjur eru af frekari truflunum á aðfangakeðjum eldsneytis. Hátt olíuverð og óvissa um framboð hafa jafnframt áhrif á flutningskostnað, hráefnisverð og önnur aðföng til dagvöruverslunar, sem eykur þrýsting á verðlagningu matvæla. Á Íslandi hefur verðbólga aukist á ný, en það eru jákvæð tíðindi að samkomulag hefur náðst um framlengingu kjarasamninga í ríflega eitt ár. Vonir standa til að það skapi aukinn stöðugleika og betri forsendur fyrir hjöðnun verðbólgu og lækkun vaxta á næstu misserum.

Áhersla okkar verður áfram á að standa vörð um hagkvæm innkaup og lágt vöruverð fyrir íslensk heimili. Árangur síðustu mánaða, með innkaupasamstarfi við Salling Group og markvissum verðlækkunum hjá Bónus og Hagkaup, sýnir hverju hægt er að áorka með öflugu innkaupastarfi og skilvirkum rekstri og að þar fari hagsmunir viðskiptavina og sterkur rekstur vel saman. Árangurinn byggir á frábæru starfsfólki Haga og dótturfélaga sem leggur sig fram á hverjum degi til að gera verslun hagkvæmari, einfaldari og skemmtilegri. Rekstur helstu eininga gengur vel, fjárhagsstaða félagsins er sterk og tækifæri eru til frekari vaxtar. Við gerum ráð fyrir áframhaldandi sterkum rekstri og hækkun afkomuspár endurspeglar þá trú okkar að Hagar séu vel í stakk búnir til að skila bæði viðskiptavinum og hluthöfum auknum verðmætum á komandi misserum.


Kynningarfundur föstudaginn 16. október 2026

Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og hluthafa verður haldinn á Hótel Reykjavík Grand, Sigtúni 28 í Reykjavík, föstudaginn 16. október kl. 08:30. Þar munu Finnur Oddsson, forstjóri, og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs, kynna rekstur og afkomu félagsins ásamt því að svara fyrirspurnum.

Fundinum verður auk þess streymt og er skráning á streymið hér: https://www.hagar.is/skraning.

Kynningargögn verða aðgengileg á heimasíðu Haga, www.hagar.is, við upphaf fundar.

Nánari upplýsingar veita Finnur Oddsson, forstjóri félagsins (fo@hagar.is), og Guðrún Eva Gunnarsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálasviðs (geg@hagar.is), í síma 530-5500 eða tölvupósti.