Fredag 22 Maj | 21:49:11 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2021-08-26 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-03-26 - Årsstämma
2021-03-11 - Bokslutskommuniké 2020
2020-06-02 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 1.15 ISK
2019-04-08 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 1.00 ISK
2018-04-20 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 0.75 ISK
2017-04-03 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 1.00 ISK
2016-03-21 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 0.84 ISK
2015-03-30 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 0.67 ISK
2014-03-31 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 0.54 ISK
2013-07-01 - X-dag ordinarie utdelning HAMP 0.29 ISK

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorIndustri
IndustriIndustriprodukter
Hampiðjan är en tillverkare av specialiserade och högkvalitativa rep. Idag erbjuder bolaget produkter och tillhörande tjänster för olika sektorer, från industri, offshore till fiskeindustrin. Produktportföljen inkluderar exempelvis fiskeredskap, rep och nät, remmar samt linor anpassade för tuffa miljöer ute till sjöss. Verksamhet innehas på global nivå, med störst närvaro på den nordiska – och europeiska marknaden.

Vem äger bolaget?

All ägardata du vill ha finns i Holdings!

2026-05-22 17:40:33

Undanfarin ár hefur samstæða Hampiðjunnar vaxið hratt, meðal annars með kaupum á Kohinoor á Indlandi og Mørenot í Noregi. Jafnframt var öll starfsemi samstæðunnar í fiskeldi sameinuð undir heitinu Eldi um síðustu áramót. Þessi þróun hefur aukið umfang samstæðunnar og gert fjárhagsuppgjör og fjármálastjórn flóknari, sem kallað hefur á frekari styrkingu fjármálasviðsins.

Til að mæta þessum breytingum hefur skipulagi fjármálasviðsins verið breytt þannig að Emil Viðar Eyþórsson, sem hefur verið fjármálastjóri Hampiðjunnar undanfarin 10 ár, mun héðan í frá stýra fjármálasviði félagsins sem framkvæmdastjóri fjármálasviðs. Í stað hans hefur Sigurhjörtur Sigfússon verið ráðinn fjármálastjóri Hampiðjunnar og skipuritinu þannig háttað að Emil verður næsti yfirmaður Sigurhjartar.

Með þessari breytingu fær Emil aukið svigrúm til að vinna með dótturfélögum samstæðunnar, ásamt Hirti Erlendssyni, forstjóra, að skipulagningu, hagræðingu og frekari uppbyggingu starfseminnar. En þeir Hjörtur og Emil skipa framkvæmdastjórn félagsins og hefur þessi breyting ekki í för með sér breytingu á því.

Sigurhjörtur er viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi með mikla reynslu af fjármálastjórn og samstæðuuppgjörum. Hann kemur til Hampiðjunnar frá Rapyd Europe, þar sem hann gegndi starfi fjármálastjóra og hann hefur áður meðal annars starfað hjá Mannviti, Símanum, Íslenskri erfðagreiningu og PwC.

Í starfi sínu mun Sigurhjörtur leggja megináherslu á fjárhagsuppgjör samstæðunnar og daglega fjármálastjórn í nánu samstarfi við fjármálateymi Hampiðjunnar.

„Það er mér mikill heiður að taka við starfi fjármálastjóra Hampiðjunnar. Ég hef fylgst með þróun og vexti félagsins undanfarin ár og er fullur tilhlökkunar að vinna með öflugum hópi stjórnenda og starfsfólks samstæðunnar,“ segir Sigurhjörtur Sigfússon.

„ Það er mikið fagnaðarefni fyrir okkur að Sigurhjörtur hefur ákveðið að ganga til liðs við okkur og styrkja þannig fjármálasvið Hampiðjunnar. Hann hefur mikla og fjölbreytta reynslu í rekstri fyrirtækja og samstæðuuppgjörum alþjóðlegra fyrirtækjasamstæða og sú reynsla mun nýtast okkur vel. Við bjóðum hann velkominn til starfa og hlökkum til samstarfsins.

Frá kaupunum á Mørenot vorið 2023 og skráningu á aðalmarkaðinn í kjölfar þess þá hefur verið unnið ötullega að endurskipulagningu innan samstæðunnar og kaupin á meirihluta í indverska fyrirtækinu Kohinoor síðastliðið ár fullkomnar fyrirhugað framtíðarskipulag Hampiðjusamstæðunnar. Eins og tilkynnt var við skráningu á aðalmarkaðinn þá tekur þetta umbreytingarferli nokkur ár en er komið vel á veg. Þessi árin er verið að vinna úr öllum þeim hagræðingarmöguleikum sem hafa skapast við kaupin á Mørenot og Kohinoor og þar eru mörg verkefni sem þarf að sinna og því hentugt að breytt skipulag fjármálasviðsins gefi Emil meiri tíma til að sinna þeim verkefnum með mér,“ segir Hjörtur Erlendsson forstjóri Hampiðjunnar.