Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Mid Cap Iceland |
Sektor | Fastigheter |
Industri | Förvaltning |
Heimar hf. („Heimar“ eða „félagið“) hafa undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Tryggvagötu ehf. Seljendur eru MF2 hs. og Laxamýri ehf.
Tryggvagata ehf. á fasteignirnar Tryggvagötu 14, og Tryggvagötu 10 í miðborg Reykjavíkur. Heildarfermetrafjöldi fasteignanna er um 5.500 m2. Fasteignirnar eru heilar nýlegar eignir byggðar árið 2018 og eru staðsettar innan skilgreindra kjarnasvæða Heima. Kaupin samræmast því stefnuáherslum félagsins.
Um er að ræða kaup á 106 herbergja, 4 stjörnu hóteli í miðborg Reykjavíkur og aðliggjandi skrifstofubyggingu. Exeter hótel hefur á síðustu misserum fest sig í sessi sem eitt af bestu hótelum borgarinnar og er það staðsett á eftirsóttum stað með einstakt útsýni yfir höfnina. Hótelið býr yfir framúrskarandi staðsetningu, nútímalegri hönnun og gæðaþjónustu sem tryggir hátt nýtingarhlutfall og verðmætasköpun til framtíðar.
Eignirnar eru í útleigu og leigutakar í eignunum eru Exeterhouse ehf., rekstraraðili Exeter hótels, og Aton Jl.
Heildarvirði (e. enterprise value) Tryggvagötu ehf. samkvæmt kaupsamningi nemur kr. 6.375.000.0000. Kaupverð greiðist að fullu með reiðufé og yfirtöku skulda.
Stjórnendur Heima áætla að áhrif kaupanna á EBITDA félagsins á ársgrundvelli verði 454 m.kr. í kjölfar viðskipta.
Kaupsamningurinn er háður ýmsum fyrirvörum, m.a. um niðurstöðu áreiðanleikakannana og samþykki Samkeppniseftirlitsins.
Frekari grein verður gerð fyrir viðskiptunum á síðari stigum eftir því sem tilefni er til og samræmi við lögbundna upplýsingagjöf félagsins.
LEX var ráðgjafi Heima í viðskiptunum og Arion banki og BBA // Fjeldco voru ráðgjafar seljenda.
Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima hf., s. 821 0001.