Tisdag 1 Juli | 12:16:55 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2025-03-12 - Årsstämma
2025-02-12 - Bokslutskommuniké 2024
2024-11-06 - Kvartalsrapport 2024-Q3
2024-08-21 - Kvartalsrapport 2024-Q2
2024-05-07 - Kvartalsrapport 2024-Q1
2024-03-12 - Årsstämma
2024-02-14 - Bokslutskommuniké 2023
2023-11-16 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-30 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-07 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2023-03-07 - Årsstämma
2023-02-10 - Bokslutskommuniké 2022
2022-11-04 - Kvartalsrapport 2022-Q3
2022-08-23 - Kvartalsrapport 2022-Q2
2022-05-05 - Kvartalsrapport 2022-Q1
2022-03-10 - Årsstämma
2022-02-10 - Bokslutskommuniké 2021
2021-11-04 - Kvartalsrapport 2021-Q3
2021-08-12 - Kvartalsrapport 2021-Q2
2021-05-06 - Kvartalsrapport 2021-Q1
2021-03-11 - X-dag ordinarie utdelning HEIMAR 0.00 ISK
2021-03-10 - Årsstämma
2021-02-10 - Bokslutskommuniké 2020
2020-11-05 - Kvartalsrapport 2020-Q3
2020-08-13 - Kvartalsrapport 2020-Q2
2020-05-13 - Kvartalsrapport 2020-Q1
2020-03-11 - Årsstämma
2020-02-12 - Bokslutskommuniké 2019
2019-11-07 - Kvartalsrapport 2019-Q3
2019-08-15 - Kvartalsrapport 2019-Q2
2019-04-11 - Kvartalsrapport 2019-Q1
2019-03-14 - Årsstämma
2019-02-13 - Bokslutskommuniké 2018
2018-03-14 - Årsstämma
2018-02-13 - Bokslutskommuniké 2017

Beskrivning

LandIsland
ListaMid Cap Iceland
SektorFastigheter
IndustriFörvaltning
Heimar är ett fastighetsbolag. Bolaget äger och förvaltar ett fastighetsbestånd som består av kommersiella fastigheter. Portföljen av fastigheter inkluderar exempelvis kontors- och lagerlokaler, samt fastigheter för hotell och köpcentrum. Utöver investerar och utvecklar bolaget i både befintliga och nya fastigheter runtom på den isländska marknaden. Verksamhet styrs via flertalet dotterbolag med vardera affärsinriktning.
2025-06-06 16:14:55

Kaup Heima hf. („Heimar“) á öllu hlutafé Tryggvagötu ehf., sem tilkynnt var um 20. febrúar sl., eru nú frágengin. Seljendur eru MF2 hs. og Laxamýri ehf. Kaupverðið var greitt að fullu með reiðufé og yfirtöku skulda. 

Tryggvagata ehf. á fasteignirnar Tryggvagötu 14, og Tryggvagötu 10 í miðborg Reykjavíkur. Heildarfermetrafjöldi fasteignanna er um 5.500 m2. Um er að ræða kaup á 106 herbergja, 4 stjörnu hóteli í miðborg Reykjavíkur og aðliggjandi skrifstofubyggingu. 

Eignirnar eru í útleigu og leigutakar í eignunum eru Exeterhouse ehf., rekstraraðili Exeter hótels, og Aton Jl. Exeter hótel hefur á síðustu misserum fest sig í sessi sem eitt af bestu hótelum borgarinnar og er það staðsett á eftirsóttum stað með einstakt útsýni yfir höfnina. Hótelið er vel staðsett, með nútímalegri hönnun og gæðaþjónustu sem tryggir hátt nýtingarhlutfall og verðmætasköpun til framtíðar.  

Fasteignirnar eru heilar nýlegar eignir byggðar árið 2018 og eru staðsettar innan skilgreindra kjarnasvæða Heima. Kaupin samræmast því stefnuáherslum félagsins. 

Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima: 

„Kaupin á þessum vönduðu og vel staðsettu fasteignum í hjarta Reykjavíkur marka mikilvægt skref í áframhaldandi vaxtar- og kjarnastefnu Heima. Exeter hótel hefur á undanförnum árum byggt upp sterkt vörumerki sem við teljum samræmast gæðum og langtímahugsun Heima. Með þessum kaupum styrkjum við enn frekar eignasafn okkar með hágæða útleigueignum á lykilstaðsetningum og tryggjum áframhaldandi verðmætasköpun fyrir hluthafa okkar. Við hlökkum til góðs samstarfs við núverandi leigutaka og viljum þakka seljendum og ráðgjöfum fyrir fagleg vinnubrögð í tengslum við viðskiptin.” 

Hjalti Gylfason, stjórnarformaður Laxamýri ehf. og eigandi Exeterhouse ehf.

„Það er ánægjulegt að afhenda fasteignirnar, sem við þróuðum og byggðum upp, til trausts og öflugs fasteignafélags eins og Heima. Exeterhouse ehf. mun áfram reka hótelið undir sínum núverandi merkjum og hlökkum við til að halda áfram að veita gæðaþjónustu á þessum einstaka stað í hjarta borgarinnar í góðu samstarfi við Heima.” 

LEX var ráðgjafi Heima í viðskiptunum og BBA // Fjeldco voru ráðgjafar seljenda. 

Nánari upplýsingar veitir Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima, s. 821 0001