Kurs & Likviditet
Prenumeration
Beskrivning
Land | Island |
---|---|
Lista | Large Cap Iceland |
Sektor | Finans |
Industri | Storbank |
Íslandsbanki mun birta afkomu fyrir annan ársfjórðung 2021 eftir lokun markaða þann 28. júlí 2021.
Rafrænn afkomufundur miðvikudaginn 28. júlí kl. 16.00
Fundinum verður streymt í vefstreymi er haldið verður miðvikudaginn 28. júlí kl. 16.00 fyrir fjárfesta og markaðsaðila. Birna Einarsdóttir, bankastjóri og Jón Guðni Ómarsson, fjármálastjóri munu kynna afkomu bankans og helstu atriði í rekstri hans á öðrum ársfjórðungi. Fundurinn fer fram á ensku.
Skráning á fundinn fer fram hér. Upptaka af fundinum verður aðgengileg á síðu fjárfestatengsla að honum loknum.
Markaðsaðilar geta einnig hringt inn á fundinn og lagt fram spurningar í gegnum eftirfarandi símanúmer:
Ísland: +354 800 74 37
Danmörk: +45 354 45 577
Svíþjóð: +46 8 566 42 651
Noregur: +47 235 00 243
Bretland: +44 33 330 00 804
Bandaríkin: +1 631 913 1422
Aðgangskóði: 67974052#
Fjárfestatengsl
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Íslandsbanka í gegnum netfangið ir@islandsbanki.is
Póstlisti Íslandsbanka
Ef þú vilt gerast áskrifandi að kauphallarfréttum Íslandsbanka þá vinsamlegast skráðu þig hér: https://www.islandsbanki.is/is/grein/postlisti_ir
Um Íslandsbanka
Íslandsbanki er alhliða banki sem leggur áherslu á að koma til móts við þarfir viðskiptavina sinna og á sér langa sögu sem nær aftur til ársins 1875. Bankinn leggur áherslu á traustan rekstur og að hafa jákvæð áhrif í samfélaginu en hlutverk bankans er að vera hreyfiafl til góðra verka svo viðskiptavinir okkar nái árangri. Með framtíðarsýnina að vera #1 í þjónustu að leiðarljósi vinna þrjár viðskiptaeiningar þétt saman til þess að viðhalda góðum viðskiptasamböndum. Markaðshlutdeild bankans er sterk og rekur bankinn skilvirkasta útibúanetið á landinu og styður um leið við viðskiptavini sína á stafrænni vegferð þeirra. Umhverfið sem bankinn starfar í er eftirsóknarvert og er Íslandsbanki vel í stakk búinn að takast á við tækifærin framundan með öflugar tæknilegar stoðir og sterkan efnahagsreikning. Íslandsbanki er með lánshæfismatið BBB/A-2 frá S&P Global Ratings. Hlutabréf bankans eru skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.