Onsdag 31 December | 04:12:11 Europe / Stockholm
2025-11-25 17:55:53

Kaldalón hf. hefur lokið sölu á óveðtryggðum sex mánaða víxlum í flokki KALD 26 0601. Tilboð bárust fyrir 1.400 milljónir kr. með flötum vöxtum á bilinu 8,01% til 8,16% p.a. Seldir voru víxlar að nafnvirði 1.000 milljónir kr. á 8,11% vöxtum.

Greiðslu og uppgjörsdagur er mánudagurinn 1. desember 2025. Sótt verður um töku víxlanna til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland og verður fyrsti viðskiptadagur tilkynntur með að lágmarki eins dags fyrirvara.

Landsbankinn hf. hafði umsjón með sölu víxlanna.

Nánari upplýsingar veita: 

Sigurbjörg Ólafsdóttir, fjármálastjóri Kaldalóns hf. sigurbjorg.olafsdottir@kaldalon.is

Gunnar S. Tryggvason s: 410 6709 / 821 2090 eða gunnars@landsbankinn.is