Måndag 27 Juli | 17:39:38 Europe / Stockholm

Kvika banki hf.: Birting uppgjörs fyrsta ársfjórðungs þriðjudaginn 12. maí

2026-05-08 11:56:26

Áætlað er að stjórn Kviku banka hf. samþykki árshlutareikning samstæðunnar fyrir fyrsta ársfjórðung ársins 2026 á stjórnarfundi þriðjudaginn 12. maí og verður hann birtur í kjölfarið, eftir lokun markaðar.

Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn daginn eftir, miðvikudaginn 13. maí kl. 08:30, í höfuðstöðvum bankans á 9. hæð í Katrínartúni 2. Þar munu Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku, og Eiríkur Magnús Jensson, fjármálastjóri, fara yfir uppgjör félagsins auk þess að Richard Beenstock, framkvæmdastjóri Kvika Limited, mun fjalla um starfsemi félagins í Bretlandi.

Fundinum verður streymt á íslensku en upptaka með enskum texta verður gerð aðgengileg síðar á vefsvæði Kviku.

Hægt er að senda tölvupóst með spurningum fyrir fundinn eða á meðan honum stendur á fjarfestatengsl@kvika.is

Fjárfestakynning sem verður farið yfir á fundinum verður gerð aðgengileg áður en fundurinn hefst.