Kvika banki hf.: Reglubundin tilkynning um kaup á eigin bréfum í samræmi við endurkaupaáætlun og leiðrétting á fyrri tilkynningu um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar.
Leiðrétting: Vísað er til tilkynningar Kviku banka hf. („Kvika“ eða „bankinn“) frá 11. september 2026 um niðurfellingu gildandi endurkaupaáætlunar og framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar. Kvika leiðréttir hér með upplýsingar sem birtar voru í tilkynningu bankans frá 11. september 2026 um framkvæmd nýrrar endurkaupaáætlunar. Við yfirferð gagna kom í ljós að kaup á 1.000.000 eigin hlutum að kaupverði 13.250.000 kr., voru ekki birt í reglubundinni upplýsingagjöf um framkvæmd fyrri endurkaupaáætlunar bankans. Að teknu tilliti til leiðréttingarinnar keypti bankinn því samtals 34.499.997 eigin hluti samkvæmt þeirri áætlun og nam heildarkaupverð þeirra því 459.449.959 kr. Nemur eftirstandandi heimild samkvæmt nýju endurkaupaáætluninni þar af leiðandi 1.540.550.041 kr. að kaupvirði í stað 1.553.800.041 kr. sem áður var tilkynnt um eða að hámarki 165.500.003 hlutir í stað 166.500.003.
Í viku 38 keypti Kvika 4.100.000 eigin hluti að kaupverði 50.127.500 kr. eins og nánar er greint frá hér á eftir:
| Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð | Kaupverð |
| 14.09.2026 | 10:00:37 | 750.000 | 12,5 | 9.375.000 |
| 15.09.2026 | 10:30:12 | 1.600.000 | 12,4 | 19.840.000 |
| 17.09.2026 | 10:16:13 | 1.750.000 | 11,95 | 20.912.500 |
| Samtals | 4.100.000 | 50.127.500 |
Um er að ræða viðskipti bankans í samræmi við endurkaupaáætlun félagsins sem tilkynnt var um í Kauphöll þann 11. september 2026 og er gerð í samræmi við heimild aðalfundar Kviku þann 18. mars 2026.
Kvika hefur nú keypt samtals 4.100.000 eigin hluti samkvæmt áætluninni eða sem nemur 0,095% af útgefnum hlutum í félaginu. Nemur heildarkaupverð þeirra 50.127.500 kr. Eftir kaupin eru eigin hlutir Kviku samtals 45.836.460 hlutir eða sem nemur 1,059% af útgefnum hlutum í félaginu.
Endurkaup samkvæmt áætluninni munu nema að hámarki 1.540.550.041 kr. að kaupvirði en aldrei fleiri hluti en 165.500.003.
Endurkaupaáætlunin er í gildi þar til endurkaupum að kaupvirði 1.540.550.041 kr. er lokið eða 165.500.003 hlutir hafa verið keyptir, hvort sem gerist fyrr, en þó aldrei lengur en til 30. apríl 2027.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar skal vera í samræmi við lög. þ.m.t. lög um hlutafélög nr. 2/1995, reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) um markaðssvik (MAR) nr. 596/2014 sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnar ESB (EU) 2016/1052 frá 8. mars 2016. sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum nr. 60/2021 sem tóku gildi á Íslandi 1. september 2021.
Nánari upplýsingar veita fjárfestatengsl Kviku á netfanginu fjarfestatengsl@kvika.is