Eftirtalin gefa kost á sér til setu í stjórn Nova Klúbbsins hf. á aðalfundi félagsins, sem haldinn verður fimmtudaginn, 27. mars 2024, kl. 16:00:
- Hrund Rudolfsdóttir
- Jóhannes Þorsteinsson
- Jón Óttar Birgisson
- Sigríður Olgeirsdóttir
- Steinunn Hlíf Sigurðardóttir
Framboðsfrestur er nú útrunninn og hefur stjórn félagsins staðfest lögmæti framboðanna. Í samþykktum Nova Klúbbsins hf. kemur fram að fimm skipa stjórn félagsins og er því sjálfkjörið í stjórn félagsins.
Eftirtalin gefa kost á sér til setu í tilnefningarnefnd félagsins:
- Thelma Kristín Kvaran
- Helgi Bjarnason
- Kristján Pétur Sæmundsson
Framboðsfrestur vegna framboða til setu í tilnefningarnefnd félagsins er einnig útrunninn og hefur stjórn staðfest lögmæti framboðanna. Starfsreglur tilnefningarnefndar gera ráð fyrir tveimur nefndarmönnum til setu í nefndinni, verður því kjörið í nefndina á aðalfundinum.
Nánari upplýsingar um frambjóðendur er að finna á vefsíðu félagsins, www.nova.is/fjarfestar.