Góð rekstrarniðurstaða mikilvægt veganesti fyrir næstu skref Nova
Nova skilaði góðum hagnaði á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Heildartekjur á síðasta ársfjórðungi voru um 3,5 milljarðar og jukust um 5,2% milli ára. Þjónustutekjur hækkuðu um 9% og EBITDA jókst um 10,8%. Hagnaður fjórðungsins var 244 milljónir og eykst um 33,9% milli ára.
Stjórn Nova hefur ákveðið að stofna sérstakt innviðafélag um lykilinnviði, dreifikerfi og stofnnet, sem verður að fullu í eigu Nova Klúbbsins, móðurfélags Nova. Með nýju félagi, Nova innviðir, verður til skýrari aðgreining ólíkra þátta í starfsemi félagsins, þjónustu- og innviðarekstrar, sem styrkir stöðu Nova sem leiðandi aðila á íslenskum fjarskiptamarkaði. Þannig skapast mikilvægt tækifæri til hagræðingar með enn meiri samnýtingu, m.a á vettvangi Sendafélagsins. Einnig skapast traustari grundvöllur til þess tryggja loforð okkar um að vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir.
Helstu niðurstöður á fjórða ársfjórðungi:
- Heildartekjur voru 3.501 m.kr. og vaxa um 5,2% á milli ára
- Þjónustutekjur námu samtals 2.642 m.kr. og vaxa um 9,0% á milli ára.
- EBITDA nam 1.065 m.kr. og vex um 10,8% á milli ára. EBITDA hlutfallið var 30,4% á fjórðungnum samanborið við 28,9% á fyrra ári.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 433 m.kr. samanborið við 398 m.kr á sama tímabili á fyrra ári.
- Hrein fjármagnsgjöld á fjórðungnum nema 145 m.kr. og lækka um 26,2%
- Hagnaður fjórðungsins eftir skatta var 244 m.kr. og hækkar um 33,9%
Helstu niðurstöður ársins 2024:
- Heildartekjur voru 13.314 m.kr. og vaxa um 2,5% á milli ára
- Þjónustutekjur námu samtals 10.358 m.kr. og vaxa um 6,4% á milli ára.
- EBITDA nam 4.128 m.kr. og vex um 3,8% á mili ára. EBITDA hlutfallið var 31,0% á árinu samanborið við 30,6% á fyrra ári.
- Rekstrarhagnaður (EBIT) nam 1.862 m.kr. samanborið við 1.826 m.kr. á fyrra ári.
- Hrein fjármagnsgjöld ársins nema 839 m.kr. og lækka um 11,0% frá fyrra ári.
- Hagnaður ársins eftir skatta var 807 m.kr. og hækkar um 10,7% frá fyrra ári
- Hagnaður á hlut eykst um 14,6% milli ára
- Handbært fé frá rekstri á árinu er 3.107 m.kr.
- Eiginfjárhlutfall var 40,6% í lok ársins og eigið fé nam samtals 9.664 m.kr.
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- og forstjóri Nova segir uppgjörið frábært veganesti inn í enn frekari vöxt.
„Það er alltaf ánægjulegt að skila góðu uppgjöri en það eru nokkrir þættir sem gera það sérstaklega ánægjulegt núna. Við erum ekki bara að sjá góðan hagnað fyrir hluthafa og alla meginþætti rekstursins í takti við eða umfram væntingar. Við erum að sjá verulega fjölgun viðskiptavina á fastneti og á fyrirtækjamarkaði, bæði í hefðbundinni þjónustu en líka í sérlausnum. Við erum efst í Íslensku ánægjuvoginni sextánda árið í röð, sem er líklega mikilvægasti mælikvarðinn á það hvort við séum á réttri leið gagnvart viðskiptavinum okkar og það sem er verulega ánægjulegt er að þar erum við einnig að sjá betri niðurstöður frá síðasta ári, sem er sannarlega ekki sjálfgefið.
Allt þetta skiptir máli því það er mikilvægt að lykilþættir séu í lagi þegar við horfum til nýrra verkefna og enn frekari vaxtar. Það eru spennandi hlutir framundan hjá Nova. Einn af þeim eru Nova innviðir, en ein mikilvægasta stoðin í okkar rekstri er að eiga og reka okkar eigin innviði. Þannig höldum við forskoti okkar á markaðnum og getum alltaf boðið besta og öruggasta net- og símasamband sem í boði er og staðið við loforð okkar um að vera fyrst inn í framtíðina með snjallari lausnir. Þessi aðgreining þjónustu- og innviðreksturs gefur okkur ný tækifæri sem við erum sannfærð um að muni bæði skila hagræði og betri þjónustu út um allt land fyrir viðskiptavini. Niðurstaðan af reglulegri starfsemi ársins 2024 er sú besta í sögu Nova. Árið og uppgjörið nú er því frábær upptaktur að því sem koma skal og vil ég segja TAKK til okkar frábæru viðskiptavina og til Nova liðsins fyrir metnaðinn, kraftinn og gleðina.“
Kynningarfundur fyrir markaðsaðila og fjárfesta vegna uppgjörsins verður haldinn á morgun, föstudaginn 28. febrúar, kl. 8:30, hjá Nova, Lágmúla 9, á 4. hæð.
Margrét Tryggvadóttir, skemmtana- & forstjóri, ásamt Þórhalli Jóhannssyni, fjármálastjóra, kynna uppgjör Nova Klúbbsins og svara fyrirspurnum.
Boðið verður uppá beint streymi sem hægt verður að nálgast, ásamt kynningarefni, á heimasíðu Nova.
Velkomið er að senda spurningar fyrir kynningarfundinn eða á meðan á honum stendur á netfangið fjarfestatengsl@nova.is