Í 2. viku 2025 keypti Nova Klúbburinn hf. 2.356.000 eigin hluti að kaupverði 10.162.600 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
06/01/2025 | 14:17:48 | 696.000 | 4.26 | 2.964.960 |
07/01/2025 | 09:36:17 | 666.000 | 4.30 | 2.863.800 |
10/01/2025 | 09:38:10 | 994.000 | 4.36 | 4.333.840 |
Samtals | 2.356.000 | 10.162.600 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 98.729.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 101.085.000 hluti, eða um 2,74% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 394.209.130 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is