Fredag 9 Maj | 10:14:42 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2024-08-06 10:30:00

Í 31. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.088.000 eigin hluti að kaupverði 11.661.500 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
29/07/2024 12:10:04 655.000 3.80 2.489.000
30/07/2024 12:40:10 600.000 3.78 2.268.000
31/07/2024 10:30:33 621.000 3.78 2.347.380
01/08/2024 14:56:54 607.000 3.76 2.282.320
02/08/2024 10:11:14 605.000 3.76 2.274.800
Samtals   3.088.000   11.661.500

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 36.084.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 39.172.000 hluti, eða um 1,06% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 150.135.070 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is