Í 33. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 1.872.000 eigin hluti að kaupverði 7.090.560 kr. í samræmi við eftirfarandi:
Dagsetning | Tími | Keyptir hlutir | Viðskiptaverð (gengi) | Kaupverð (kr.) |
14/08/2024 | 12:41:47 | 618.000 | 3.76 | 2.323.680 |
15/08/2024 | 14:26:19 | 606.000 | 3.76 | 2.278.560 |
16/08/2024 | 10:42:42 | 648.000 | 3.84 | 2.488.320 |
Samtals | 1.872.000 | 7.090.560 |
Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.
Nova Klúbburinn átti 39.879.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 41.751.000 hluti, eða um 1,13% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 159.883.950 kr.
Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.
Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is