Fredag 9 Maj | 09:57:58 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2024-08-26 11:16:47

Í 34. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.377.000 eigin hluti að kaupverði 13.277.190 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
19/08/2024 11:06:47 683.000 3.98 2.718.340
20/08/2024 14:35:59 640.000 3.96 2.534.400
21/08/2024 14:16:00 638.000 3.91 2.494.580
22/08/2024 09:37:12 721.000 3.92 2.826.320
Samtals   3.377.000   13.277.190

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 41.751.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 45.128.000 hluti, eða um 1,22% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 173.161.140 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is