Fredag 9 Maj | 09:54:54 Europe / Stockholm

Kalender

Est. tid*
2024-03-21 - Årsstämma
2024-02-27 - Bokslutskommuniké 2023
2023-10-25 - Kvartalsrapport 2023-Q3
2023-08-24 - Kvartalsrapport 2023-Q2
2023-05-02 - Kvartalsrapport 2023-Q1
2024-09-02 13:02:05

Í 35. viku 2024 keypti Nova Klúbburinn hf. 3.427.000 eigin hluti að kaupverði 13.128.640 kr. í samræmi við eftirfarandi:

Dagsetning Tími Keyptir hlutir Viðskiptaverð (gengi) Kaupverð (kr.)
26/08/2024 14:08:57 757.000 3.86 2.922.020
27/08/2024 09:56:08 485.000 3.86 1.872.100
27/08/2024 10:48:11 488.000 3.86 1.883.680
28/08/2024 12:10:55 603.000 3.84 2.315.520
29/08/2024 09:58:41 608.000 3.78 2.298.240
30/08/2024 09:59:40 486.000 3.78 1.837.080
Samtals 3.427.000   13.128.640

Viðskiptin eru í samræmi við endurkaupaáætlun Nova Klúbbsins sem tilkynnt var um í Kauphöll Íslands hf. þann 24. apríl 2024. Endurkaup munu samkvæmt áætluninni nema að hámarki 550 milljónum kr. að kaupverði og mun áætlunin vera í gildi þar til því hámarki er náð, þó aldrei lengur en fram að aðalfundi félagins 2025.

Nova Klúbburinn átti 45.128.000 eigin hluti fyrir viðskiptin og á því að þeim loknum 48.555.000 hluti, eða um 1,32% af útgefnum hlutum í félaginu, og nemur heildarkaupverð þeirra 186.289.780 kr.

Framkvæmd endurkaupaáætlunarinnar verður í samræmi við lög um hlutafélög, nr. 2/1995, 5. gr. reglugerðar Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) nr. 596/2014, um markaðssvik, sbr. lög um aðgerðir gegn markaðssvikum, nr. 60/2021, sem og framselda reglugerð framkvæmdastjórnarinnar nr. 2016/1052/EB, sem hefur að geyma tæknilega skilmála varðandi endurkaupaáætlanir.

Nánari upplýsingar veitir Þórhallur Jóhannsson, fjármálastjóri Nova Klúbbsins, á fjarfestatengsl@nova.is